Föstudagur 19. apríl, 2024
-0.8 C
Reykjavik

Rólegur yfir rannsókninni

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Ég er mjög rólegur með þetta allt,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, um upplifun sína af ásökunum og rannsókn á meintum mútum fyrirtækisins til afrískra ráðamanna og venslamanna þeirra. Héraðssaksóknara hefur verið send réttarbeiðni frá Namibíumönnum vegna málsins. Í samtali við Mannlíf segist hann jafnframt hafa undir höndum töluvert gagnamagn sem verið sé að fara yfir.

Samherji er sakaður um að hafa á árunum 2014 til 2019 greitt háttsettum stjórnmála- og embættismönnum í Namibíu rúman milljarð króna í mútur í þeim tilgangi að komast yfir eftirsóttan hrossamakrílkvóta. Fyrirtækið er sagt hafa hagnast þannig verulega á starfsemi sinni í landinu og síðan notfært sér þekkt skattaskjól til að koma hagnaðinum undan.  Rannsóknin hefur hins vegar dregist á langinn vegna lokunar landamæra í COVID-faraldrinum og hefur dómari í Namibíu samþykkt að fresta því til sumarloka að fastsetja dagsetningar fyrir réttarhöldin. Svo segir aðstoðarríkissaksóknari í Namibíu, Ed Marondedze.Hann segir að unnið sé sleitulaust að rannsókninni. Marondedze hefur lýst því yfir að hann búist við handtökum á Íslandi vegna málsins en nú sitja sjö grunaðir Afríkumenn í namibísku fangelsi vegna málsins.

Lestu nánar um málið í Mannlífi

Namibísk yfirvöld hafa óskað eftir liðsinni alþjóðalögreglunnar Interpol við rannsóknina og hefur Ólafi Þór Haukssyni héraðssaksóknara verið send réttarbeiðni frá Namibíumönnum vegna málsins. Aðspurður um hvort þeirri réttarbeiðni fylgi ósk um framsal hafnar Ólafur því. Spurður hvort framsalsbeiðni hafi verið lögð fram segist hann hvorki geta staðfest það né hafnað því. „Ég get ekki tjáð mig um hvað kemur fram í þessari réttarbeiðni því það er rannsókn sem Namibíumennirnir eru með í sínum höndum og verða að svara fyrir.“

Lestu um málið í Mannlífi. 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -