Föstudagur 29. mars, 2024
-3.2 C
Reykjavik

Guðni hefur gefið alla launahækkun sína til góðgerðarmála frá árinu 2016

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hefur staðið við stóru orðin frá 2016 og gefið allar launahækkanir sínar til góðgerðarmála, alls um 12 milljónir króna að því er fram kemur í frétt Hringbrautar um málið. Auk þess hefur hann óskað eftir því að laun hans verði fryst til ársins 2021 og við því hefur verið orðið.

Forsaga málsins er sú að í nóvember 2016 ákvað Kjararáð að hækka laun æðstu ráðamanna þjóðarinnar verulega, þar á meðal laun forsetans um hálfa milljón á mánuði. Strax eftir að þessi hækkun var tilkynnt sagði Guðni að hún myndi ekki renna í hans vasa heldur myndi hann gefa hana til góðgerðarmála. „„Ég bað ekki um þessa kaup­hækkun og vissi ekki af henni. Ég þarf ekki þessa kaup­hækkun,“ sagði hann þá.

Við það hefur hann staðið og staðfestir Örnólfur Thorsson, forsetaritari, í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins og Hringbrautar um stöðu málsins nú nýverið,  að fyrirkomulagið sé enn óbreytt. „Þegar kjara­ráð heitið hækkaði laun for­seta um­tals­vert haustið 2016 hafði for­seti enga vit­neskju um að það stæði til. Hann lét þau orð falla þá að hann hefði ekki beðið um þessa hækkun, þyrfti ekki þessa hækkun og mundi því láta hana renna annað. Þetta er ó­breytt,“ segir forsetaritari.

Ekki kemur fram í svari forsetaritara um hvaða góðgerðarsamtök er að ræða en ljóst er að forsetinn er maður orða sinna og sönn fyrirmynd fyrir aðra háttsetta embættismenn þjóðarinnar.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -