Fimmtudagur 18. apríl, 2024
4.1 C
Reykjavik

Vandaðar upplýsingar og þjónusta fyrir börn

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Nýr vefur umboðsmanns barna, www.barn.is, er nú kominn í loftið. Nýjum vef er ætlað að bæta aðgengi barna að embættinu með einfaldari leiðum til að senda fyrirspurnir og nálgast svör við algengum spurningum frá börnum. Þá mun börnum gefast tækifæri til að senda inn skilaboð í gegnum netspjall sem tekið verður til notkunar síðar og kynnt sérstaklega.

Upplýsingar um kórónaveiruna

Í tilkynningu um vefinn segir að það sé mikilvægt að börn hafi gott aðgengi að vönduðum upplýsingum og því hefur á nýjum vef embættisins verið sett upp sérstök upplýsingasíða fyrir börn um kórónuveiruna.

Á síðunni verður hægt að nálgast fjölbreytt efni sem hefur verið birt um faraldurinn en nauðsynlegt er að hægt sé að nálgast það allt á einum stað. Á síðunni verður meðal annars hægt að finna upplýsingar til barna og fullorðinna um hvað hægt er að gera í samkomubanni, fræðsluefni um kórónuveiruna, breytt skólahald og leiðbeiningar til fullorðinna um hvernig eigi að tala við börn um kórónuveiruna.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -