Þriðjudagur 16. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Samherji segir Jóhannes hafa „handvalið“ þann tölvupóst sem Wikileaks fékk

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Í nýrri tilkynningu á vef Samherja segir að Samherji hafi undanfarið látið kanna þau gögn sem Wikileaks hefur birt um félagið, þá aðallega tölvupóst úr pósthólfi Jóhannesar Stefánssonar, fyrrverandi starfsmanns Samherja. Í tilkynningunni segir að þetta séu þau gögn sem fjölmiðlar hafa stuðst við í umfjöllun sinni um viðskipti Samherja í Namibíu en að Jóhannes hafi „handvalið“ þann tölvupóst sem Wikileaks fékk afhentan.

„Jóhannes hafði að minnsta kosti 44.028 tölvupósta í pósthólfi sínu milli áranna 2014 og 2016. Hann afhenti Wikileaks 18.497 tölvupósta frá þessu tímabili sem þýðir að hann afhenti aðeins 42% af tölvupóstunum. Flestir þeirra pósta sem Jóhannes afhenti ekki eru frá árinu 2015 en hann virðist ekki hafa afhent Wikileaks neina tölvupósta frá því ári ef undanskildir eru nokkrir póstar frá janúar,“  segir meðal annars í tilkynningunni og þá er vísað í graf sem sjá má hér að neðan.

Mynd / Samherji.is

Í tilkynningu Samherja segir að þetta veki upp spurningar. „Sú aðferð sem hér hefur verið beitt, að handvelja tölvupósta, hlýtur að vekja upp fleiri spurningar en hún svarar. Hvert var efni þeirra pósta sem ekki voru birtir? Hvers vegna voru þau tímabil sem um ræðir valin en ekki allt tímabilið? Er ósamræmi í þeim gögnum sem var sleppt og þeim sem hingað til hefur verið fjallað um?“

Í tilkynningunni eru fjölmiðlar hvattir til að velta fyrir sér hvort að aðeins þau gögn sem styðja frásögn heimildarmannsins hafi litið dagsins ljós.

„Sú staðreynd að 58% af tölvupóstunum voru aldrei birt hlýtur að vera umhugsunarefni fyrir þá sem telja að frásögn Jóhannesar Stefánssonar sé rétt og sannleikanum samkvæm. Þeir fjölmiðlar sem fjallað hafa um málið þurfa líka að velta fyrir sér hvort þeir hafi aðeins séð þau gögn sem styðja frásögn heimildarmannsins en ekki heildarmyndina.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -