Fjársýsla ríkisins hefur ofgreitt laun ýmissa embættismanna undanfarin þrjú ár. Embættismennirnir eru 260 talsins en þar með talin eru laun forseta Íslands, alþingismenn og seðlabankastjórar. Greint var frá þessu á vef Fjársýslu ríkisins en verður krafa gerð um að viðkomandi aðilar endurgreiði ofgreidd laun.
„Við undirbúning launabreytinga fyrir árið 2022 kom í ljós að frá gildistöku laganna hafði viðmið við framkvæmdina verið launavísitala ríkisstarfsmanna, en ekki það viðmið sem tilgreint er í lögunum, þ.e. meðaltal reglulegra launa ríkisstarfsmanna. Um leið og þetta varð ljóst var brugðist við með nýjum verkferlum og greiningu á leiðréttingu ofgreiddra launa.“ Þá mun Fjársýslan leiðrétta greiðslur vegna staðgreiðslu skatta en munu skattframtöl 2019-2021 krefjast leiðréttingar.