Þriðjudagur 19. mars, 2024
-0.2 C
Reykjavik

Segir nýjan meirihluta vera kláran: „Leiddi flokkinn til lökustu niðurstöðu sögunnar“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ólafur Arnar­son, fyrr­verandi for­maður Neyt­enda­sam­takanna telur að flest bendi til að nýr meirihluti í borginni sé klár. Í pistli sínum segir hann að það þurfi mikið til að það fari úrskeiðis til að fjögurra flokka meirihluti verði ekki niðurstaðan í Reykjavík.

„Samfylking, Framsókn, Píratar og Viðreisn munu mynda hann með 13 borgarfulltrúa á bak við sig. Ætla má að formlegar viðræður hefjist á næstu dögum en verið er að vinna að þessari niðurstöðu að tjaldabaki.“

Ólafur virðist lítt hrifinn af oddvitum sumra flokka í borgarstjórn og segir þá hafa farið mikinn í fjölmiðlum og komið fram í ýmsum viðtölum og haft lítið markvert að segja. „Sumum finnst greinilega skemmtilegt að baða sig upp úr athygli fjölmiðla og aðrir eru að auki að reyna að planta einhverjum viðhorfum sem hafa ekkert að segja varðandi raunverulega meirihlutamyndun.“

Hildur illa læs á umhverfi sitt

Hann skilur jafnframt ekki Hildi Björnsdóttur, sem leiddi lista Sjálfstæðisflokksins. Hann segir hana hafa „leitt flokkinn til lökustu niðurstöðu sögunnar og var sjálf strikuð úr af nærri 300 flokksmönnum, hefur reynt að koma því inn hjá fjölmiðlum að flokkur hennar eigi raunverulega möguleika á að komast í meirihlutasamstarf við aðra flokka í borginni. Þetta er ekki rétt. Hér verður ekki fullyrt um það hvort Hildur er að reyna að blekkja eða hvort hún er svona illa læs á umhverfi sitt.“

Fer ekki í meirihlutasamstarf við aðra flokka

Ólafur telur Sjálfstæðisflokkinn ekki fara í meirihlutasamstarf við aðra flokka í borginni. „Fyrir liggur að Píratar og Sósíalistaflokkur Íslands hafa ítrekað lýst því yfir að þeir vilji alls ekki vinna með Sjálfstæðisflokknum. Þá hafa Vinstri græn dregið sig í hlé frá stjórnmálastarfi í borginni og ætla að meta stöðu sína, sleikja sárin og reyna að komast að því hvers vegna þeim var hafnað í Reykjavík – og reyndar algerlega hafnað í flestum helstu byggðarlögum landsins, eins og t.d.í Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ og Mosfellsbæ. VG er því ekki að fara að mynda neinn meirihluta í Reykjavík.“

HÉR er hægt að lesa pistillinn í heild sinni.

- Auglýsing -

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -