Föstudagur 19. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Segja neyðarástand ríkja á Bráðamóttöku Landspítala

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Vakt­stjór­ar hjúkr­un­ar bráðadeild­ar G2 Land­spít­ala hafa sent frá sér yfirlýsingu og lýsa yfir áhyggjum sínum á ástandinu á deildinni. Í yfirlýsingunni segir að starfsfólk deildarinnar taki undir orð Más Kristjánssonar, yfirlæknis smitsjúkdómalækninga á Landspítalanum, sem varar við að stórslys kunni að vera í aðsigi á deildinni í Læknablaðinu í janúar 2020.

Í yfirlýsingunni segir að mikið álag gerir það að verkum að starfsfólk á erfitt með að stýra Bráðamóttökunni sem skyldi. „Deildin, sem hönnuð er til að
sinna mest 35 sjúklingum með bráðan vanda, hýsir nú alla daga 20-40 sjúklinga til
viðbótar sem lokið hafa meðferð á Bráðamóttöku en hafa ekki fengið pláss á viðeigandi
legudeildum sjúkrahússins,“ segir meðal annars.

Þá segir enn fremur að ákveðið neyðarástand ríki á Bráðamóttökunni. „Það er neyðarástand á Bráðamóttöku Landspítala og mun það enda með ósköpum ef ekki er brugðist við með róttækum aðgerðum nú þegar.“

29 hjúkrunarfræðingar skrifa undir yfirlýsinguna og skora á heilbrigðisráðherra, velferðarnefnd Alþingis og stjórn Landspítala að finna lausn á vandanum.

Yfirlýsinguna má lesa í heild sinni hérna:

Yfirlýsing um vanda Bráðamóttöku Landspítala

- Auglýsing -

Í ljósi erfiðrar stöðu Bráðamóttöku sjá undirrituð, vaktstjórar hjúkrunar Bráðadeildar G2
Landspítala, sig knúin til að lýsa yfir alvarlegum áhyggjum sínum á ástandi deildarinnar.
Við tökum að öllu leyti undir orð Más Kristjánssonar sem varar við að stórslys kunni að
vera í aðsigi á deildinni í Læknablaðinu í janúar 2020. Við staðfestum orð Más sem í
grein sinni lýsir aðstöðuleysi, þrengslum og óviðunandi ástandi sem heldur bara áfram
að versna.

Mikill innlagnarþungi og eftirspurn eftir þjónustu ásamt auknum fráflæðisvanda gerir
okkur ekki kleift að stýra Bráðamóttökunni sem skyldi. Deildin, sem hönnuð er til að
sinna mest 35 sjúklingum með bráðan vanda, hýsir nú alla daga 20-40 sjúklinga til
viðbótar sem lokið hafa meðferð á Bráðamóttöku en hafa ekki fengið pláss á viðeigandi
legudeildum sjúkrahússins. Sjúklingar liggja því berskjaldaðir á göngum deildarinnar.
Við reynum eftir fremsta megni að þjónusta þennan sjúklingahóp en öllum má vera það
ljóst að þeir fá ekki jafn góða þjónustu á bráðamóttökunni eins og þeir myndu fá á
viðeigandi legudeild. Ekki er mögulegt að tryggja fagmennsku, friðhelgi, öryggi og
sýkingarvarnir við þessar aðstæður.

Sem vaktstjórar hjúkrunar berum við ábyrgð á flæði sjúklinga um deildina, móttöku
þeirra og hjúkrun og er staðan nú orðin sú að erfitt eða ómögulegt er að taka á móti
nýjum sjúklingum og bíða þeir ýmist á sjúkrabörum sjúkraflutningamanna eða á biðstofu
eftir þjónustu. Við vísum fullyrðingum um að ekki ríki neyðarástand á deildinni alfarið á
bug. Það er neyðarástand á Bráðamóttöku Landspítala og mun það enda með ósköpum
ef ekki er brugðist við með róttækum aðgerðum nú þegar.

- Auglýsing -

Heilbrigðisráðherra sagði í viðtali við RÚV 6. janúar s.l. að þetta sé langtímamál: „Það er
ekkert til sem heitir einföld lausn eða skyndilausn í svona flóknu máli“. Starfsfólk
Bráðadeildar G2 hefur á undanförnum árum margoft ítrekað áhyggjur sínar af vanda
deildarinnar en talað fyrir daufum eyrum. Stjórnendur Bráðamóttökunnar hafa gert allt
sem í þeirra valdi stendur til að létta undir álagi á deildinni en yfirstjórn sjúkrahússins
virðist úrræðalaus. Vandi Landspítala er ekki einungis okkar heldur þjóðfélagsins í heild.
Hvenær verður vandi sjúkrahússins leystur?

Við hörmum að vera sett í þá stöðu að bera ábyrgð á starfsemi deildarinnar undir
þessum kringumstæðum. Við skorum því á Heilbrigðisráðherra, Velferðarnefnd Alþingis
og Stjórn Landspítala að finna lausn á þessum vanda tafarlaust.

Virðingarfyllst
Elín Tryggvadóttir, hjúkrunarfræðingur
Tryggvi Hjörtur Oddsson, hjúkrunarfræðingur
Bára Dís Lúðvíksdóttir, hjúkrunarfræðingur
Björg Sigurjónsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Júlíana Viðarsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Hafdís Björk Albertsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Árný Sigríður Daníelsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Ardís Henriksdóttir, hjúkrunarfræðingur
Hildur Dís Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Hjördís Jóhannesdóttir, hjúkrunarfræðingur
Sandra Lind Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Soffía Steingrímsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Nanna Kristín Johansen, hjúkrunarfræðingur
Kristín Rósa Ármannsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Lilja Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur
Ása M. Blöndahl, hjúkrunarfræðingur
Ragna Björg Ársælsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Kristjana Þórkatla Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Anna G. Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Sólveig Birna Jósefsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Ásthildur Guðlaugsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Anders Wahlgren, hjúkrunarfræðingur
Brynhildur Ingimundardóttir, hjúkrunarfræðingur
Kristín Halla Marinósdóttir, hjúkrunarfræðingur
Dóra Björnsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Ágústa Hjördís Kristinsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Ingibjörg Sigurþórsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Karen Anna Sævarsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Ellen Stefanía Björnsdóttir, hjúkrunarfræðingur

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -