Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Glúmur segir Ólaf Ragnar „mesta vind­hana sem Ísland hefir fætt og klætt“

Séra Auður Eir segir ásakanirnar ósannar: „Fullkomlega, algjörlega og óafturkallanlega viss“

​​Blaða­maður hitti séra Auði Eiri Vil­hjálms­dóttur til þess að fal­ast eftir svörum hennar við þeim ásök­unum sem á hana, Bjarg og starfs­konur heim­il­is­ins hafa verið bornar í gegnum tíð­ina. Meðal þeirra ásak­ana eru þær sem koma fram í við­tali við Sonju Ingva­dóttur í nýjasta tölu­blaði Mannlífs, en hún er ein þeirra sem vistuð var á Bjargi á sínum tíma.

Hér verður stiklað á stóru í svörum séra Auðar Eirar en við­talið við hana verður birt í heild sinni á vefnum innan tíðar.

„Áreiðanlega, fullkomlega og óafturkallanlega viss“

Í gegnum tíð­ina hafa komið fram ásak­anir um and­legt, lík­am­legt og í sumum til­fellum kyn­ferð­is­legt ofbeldi gegn stúlkum á Bjargi, þar sem tungum var jafn­vel sagt hafa verið þröngvað upp í munn þeirra.

Blaða­maður spyr séra Auði Eiri hvernig hún svari því.

„Ég segi að ég sé áreið­an­lega, full­kom­lega og óaft­ur­kall­an­lega sann­færð um að þetta sé upp­spuni.“

Hún seg­ist algjör­lega viss í sinni sök og talar um ósann­sögli sem hugs­an­lega geti lagt líf fólks í rúst.

Séra Auður Eir spyr hvað mann­eskja eigi að gera sem sé ásökuð um brot. „Hvað á að gera með svona ásak­anir?“

Blaða­maður spyr hvað séra Auði Eiri finn­ist sjálfri.

„Svo ég tali nú bara um þetta mál þá er ég full­kom­lega, algjör­lega og óaft­ur­kall­an­lega viss um að þessar konur hafa aldrei beitt þessar stúlkur kyn­ferð­is­legri áreitni. Þetta eru hrylli­leg­ustu ásak­an­irnar vegna þess að kyn­ferð­is­of­beldi leggur auð­vitað líf fólks í rúst. En ásak­anir um kyn­ferð­is­of­beldi gera það líka.“

Aðspurð seg­ist séra Auður Eir ekki kann­ast við nokk­urs konar ofbeldi innan Hjálp­ræð­is­hers­ins.

„Alls ekki. Því fer öld­ungis fjarri. Nú er ég svona jafn viss og ég var um kyn­ferð­is­áreitn­ina. Nei, öld­ungis ekki.“

Sonja segir í við­tali sínu að séra Auður Eir hafi sagt að það ætti að ala stúlk­urnar á Bjargi í þrælsótta. Þegar það er nefnt við séra Auði Eiri seg­ist hún ekki hafa sagt það.

„Aldrei nokkurn tíma. Og ég hef ekki hugsað það.“

Kannast ekki við einangrun né hótanir

Sonja, ásamt öðrum stúlkum, hefur lýst vist­inni á Upp­töku­heim­il­inu sem afar slæmri og lít­ils­virð­andi, þar sem þær voru hafðar í ein­angrun svo dögum skipti, með ekk­ert við að vera. Þær, sem og starfs­konur Upp­töku­heim­il­is­ins hafa sagt starfs­konur Bjargs hafa óskað eftir slíkri ein­angrun, þar á meðal séra Auði Eiri.

„Já, þær verða bara að gera það og tala við Upp­töku­heim­ilið. Ég held það bara. En þegar þær eru þar, þá eru þær á vegum Upp­töku­heim­il­is­ins.“ Hún seg­ist aldrei hafa sent stúlkur í ein­angrun.

Þegar Sonja yfir­gaf Bjarg segir hún séra Auði Eiri hafa hótað henni því að ef hún yrði ófrísk og eign­að­ist barn, yrði hún send í fang­elsi til 25 ára ald­urs.

Séra Auður Eir gengst ekki við þessu.

„Ég hef bara aldrei sagt þetta. Aldrei.“

Séra Auður Eir segir það ekki rétt að stúlka hafi verið lokuð inni á Bjargi í níu mán­uði eftir að hún var orðin sjálf­ráða, líkt og Sonja hefur lýst.

„Við ákveðum ekki hverjir áttu að vera á Bjargi og hverjir ekki. Það voru barna­vernd­ar­nefnd­irnar. Svo það er algjör­lega úti­lokað að við höfum ráð­stafað einni eða annarri stúlku. Barna­vernd­ar­nefnd­irnar ákváðu hvenær þær komu og hvenær þær fóru.“

Þetta brot úr við­tali við séra Auði Eiri er hluti af umfjöllun um stúlkna­heim­ilið Bjarg, sem má finna í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Eftir að hafa smíðað flugvél á unglingsárum rannsakar Sabrina Pasterski nú svarthol, þyngdarafl og eðli rúmtímans.
Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara

Fjölmargar kvartanir vegna tafa á afgreiðslu umsókna hafa borist umboðsmanni, sem vill skýringar á biðtíma.
Innlent

Drífa segir frjálst val í vændi oft vera blekk­ingu

Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára

Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi