Minkar hafa vakið undrun Seltjarnesinga upp á síðkastið. Minkar hafa sést í fjörunni á Seltjarnarnesi fyrir neðan Látraströnd og hafa íbúar í grend verið að velta því fyrir sér hvað sé best að gera varðandi þá.
Silje Beite Løken náði myndbandi af þeim og sögðu þá hvergi bangna, en hún segist hafa látið bæjaryfirvöld vita af þeim.
Skiptar skoðanir eru um tilvist þeirra á ströndinni en Gréta Sóley Sigurðardóttir
„vonast til þess að þeir fái að vera í friði“ á meðan að Baldur Ingi segir að; „þeir slátri þúsundum fugla og unga, oft bara til skemmtunar.“
„má ekki skjóta þá? Minkana sko… ekki kattaeigendur…“ segir Guðjón Jónatansson í færslu inn á facebook grúppunni Íbúar á Seltjarnarnesi.
Hvernig sem fer, þá er augljóst að skiptar skoðanir eru um minkana í fjörunni.