Skoðanakönnun Mannlífs – Hvað finnst þér um verkfallsboðun Eflingar

Eftir árangurlausar samningaviðræður á milli Samtaka atvinnulífsins og stéttarfélagsins Eflingar stefnir í að verkfall hefjist hjá Eflingu 7. febrúar næstkomandi. Þrjú hundruð félagsmenn greiða nú atkvæði sitt. Hópurinn starfar á sjö hótelum í borginni. Hafa Samtök  atvinnulífsins tjáð að Íslandshótelum verði bætt tjónið sem fyrirtækið mun verða fyrir komi til verkfalls.