Mánudagur 22. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Sleppur við refsingu fyrir endurteknar líkamsárásir sökum aldurs: „Sparkað og kýlt í höfuð og maga“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Dómur féll nýlega yfir íslenskum karlmanni sem ákærður var fyrir þrjár líkamsárásir.

Fyrsta árásin átti sér stað í júní 2021. „Slegið hann með kústskafti úr áli í höfuð, og sparkað og kýlt brotaþola í höfuð og maga, með þeim afleiðingum að hann hlaut mar hægra  megin  á  hnakka,  mar  á  augnloki  vinstra megin,  skrámur  og  bólgur  í  andliti  og eymsli yfir hægri kjálkalið,“ segir í lýsingu í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur.

Tveimur mánuðum tók maðurinn aftur af skarið og veittist að öðru fórnalambi. „slegið hann tveimur höggum í höfuð með kylfu, með þeim afleiðingum að hann hlaut lófastóra kúlu aftan á hnakka.“

Síðasti liður ákærunnar snýr að líkamsárás sem átti sér stað síðastliðið sumar, við hringtorg á Vesturlandsvegi. „Slegið hann  með  krepptum  hnefa í andlit, með þeim afleiðingum að  hann hlaut nokkurra sentimetra skurð í neðri vör, svo sauma þurfti níu spor í vörina.“

Maðurinn játaði brotin fyrir dómi. Horft er að endurtekinni háttasemi hans til refsiþyngingar. Hann var yngri en 18 ára þegar fyrri tvö brotin voru framin, og nýlega orðinn 18 ára þegar það síðasta var framið. Sökum ungs aldurs var ákvörðun refsingar frestað og fellur niður að tveimur árum liðnum, haldi maðurinn skilorði.  

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -