Föstudagur 29. mars, 2024
-4.2 C
Reykjavik

Smit orðin 1.086 hér á landi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Fjöldi staðfestra COVID-19 smita hér á landi er kominn upp í 1.086 samkvæmt nýjustu tölum á covid.is. Greindum smitum hefur fjölgað um 66 á síðasta sólarhring. 25 sjúklingar eru á sjúkrahúsi vegna veirunnar er fram kemur á covid.is, þar af eru 9 á gjörgæslu.

510 sýni voru rannsökuð á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans í gær, 61 reyndust jákvæð. Þá voru 490 sýni rannsökuð hjá Íslenskri erfðagreiningu í gær, fimm þeirra voru jákvæð.

Alls eru 9.236 einstaklingar í sóttkví hér á landi vegna útbreiðslu veirunnar.

Samkvæmt tölum covid.is hafa 139 einstaklingar náð bata eftir að hafa smitast.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar klukkan tvö í dag. Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins, verður gestur fundarins í dag og mun fara yfir þau verkefni sem Rauði krossinn sinnir í tengslum við COVID-19.

Uppfært kl 14:30: Uppfærðar tölur á covid.is segja að 30 séu á sjúkrahúsi vegna COVID-19, þar af eru 10 á gjörgæslu.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -