Fimmtudagur 18. apríl, 2024
4.1 C
Reykjavik

Smitrakning stendur yfir vegna hugsanlegrar hópsýkingar á höfuðborgarsvæðinu

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Smitrakning stendur yfir vegna hugsanlegrar hópsýkingar á höfuðborgarsvæðinu. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum er vitað um tvö innanlandssmit sem talið er að rekja megi til Íslendings sem talinn er hafa smitast í útlöndum, en hafði ekki greinst með veiruna við komuna til landsins. Kemur þetta fram í tilkynningu frá Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra.

Miklum fjölda fólks hefur verið skipað í sóttkví vegna málsins og líklegt er að fjölga muni í þeim hópi. Mjög mikilvægt er að allir þeir sem fá boð um sóttkví hlíti því undanbragðalaust og fylgi öllum fyrirmælum í hvívetna. Þannig er hægt að minnka líkur á að hugsanleg hópsýking sem þessi leiði til víðtækari afleiðinga.

Áréttað skal að þeir sem sæta 14-daga sóttkví vegna útsetningar fyrir smiti þurfa að ljúka henni, jafnvel þótt sýnataka á tímabilinu gefi neikvæða niðurstöðu.

Almannavarnir vilja einnig koma á framfæri þeim eindregnu tilmælum til Íslendinga sem snúa heim frá útlöndum, að þeir fari gætilega fyrst um sinn eftir heimkomu, taki ekki þátt í mannmörgum viðburðum, og takmarki samneyti við einstaklinga sem eru í aukinni hættu á alvarlegum veikindum ef þeir smitast af COVID-19, svo sem aldrað fólk.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -