Fimmtudagur 28. mars, 2024
-2.2 C
Reykjavik

Smitum fjölgar um 99

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Staðfest COVID-19 smit hér á landi eru orðin 1.319 talsins samkvæmt nýjustu tölum á covid.is. Greindum smitum hefur fjölgað um 99 á síðasta sólarhring.

597 sýni voru rannsökuð á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans í gær, 93 reyndust jákvæð. Þá voru 817 sýni rannsökuð hjá Íslenskri erfðagreiningu í gær, 6 þeirra voru jákvæð.

Alls eru 7.166 einstaklingar í sóttkví hér á landi vegna útbreiðslu veirunnar. Samkvæmt tölum covid.is hafa 270 einstaklingar náð bata eftir að hafa smitast.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar klukkan tvö í dag. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Alma D. Möller landlæknir og Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, munu fara yfir stöðu mála. Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala, verður einnig á fundinum í dag.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -