Miðvikudagur 24. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Snjóflóðin fyrir vestan: „Hjörtu okkar slá eins og í einum manni“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Hugur allra Íslendinga er með íbúum á Flateyri og Suðureyri eftir að þrjú snjóflóð féllu þar undir miðnætti í gærkvöld. Ljóst er að gríðarlegt eignatjón varð í höfninni á Flateyri. Einni stúlku var bjargað úr flóðinu.

Í færslu sem Guðmundur Gunnarsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og for­maður al­manna­varnar­nefndar skrifaði á Facebook kemur hann í orð tilfinningum okkar flestra.

„Hjörtu okkar slá eins og í einum manni þessa stundina. Þau slá með Flateyringum og öllum þeim sem stóðu í ströngu í nótt. Bæði á Flateyri og Suðureyri,“ segir Guðmundur.

Vill Guðmundur koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem komu að aðgerðum í nótt vegna snjóflóðanna.

„Ég vil koma á framfæri ólýsanlegu þakklæti til allra þeirra sem komu að aðgerðum í nótt og sáu til þess að ekki fór verr. Á Flateyri búa hetjur og þar eigum við björgunarsveit sem engin lýsingarorð ná yfir. Þeirra afrek fæst seint fullþakkað.“

Mynd sem Guðmundur birti með færslu sinni. Hún sýnir hvar snjóflóðin tvö féllu.

Guðmundur hefur fylgst með aðgerðum í alla nótt og segir fólkið fyrir vestan í öruggum höndum, en atburðir kvöldsins og næturinnar vekja upp sterkar tilfinningar.

- Auglýsing -

„Veður er enn vont og skilyrði erfið. Ég hef þó, í alla nótt, fengið að fylgjast með okkar frábæra fólk sem stendur vaktina og sér til þess að fyllsta öryggis sé gætt. Við erum í góðum höndum.

Þessir atburðir vekja upp sterkar tilfinningar. Það er skiljanlegt. Nú reynir á samtakamáttinn og samheldnina sem gerir okkur Vestfirðinga að því sem við erum. Sendum hlýja strauma. Það skiptir máli.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -