Fimmtudagur 2. maí, 2024
6.8 C
Reykjavik

Sólveig Anna slegin yfir ummælum lögfræðings ASÍ: „Lýsir samúð og stuðningi við geranda“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Það er satt best að segja ótrúlegt að upplifa þá miklu gerendameðvirkni sem ríkir innan stærstu hreyfingar vinnandi fólks á Íslandi. Hún sést með skýrum hætti í framferði lögfræðings ASÍ og einnig í því hversu stór hópur úr framvarðasveit íslensku verkalýðshreyfingarinnar er tilbúinn til að sýna manninum sem rekinn var í gær frá Eflingu mikla og innilega hluttekningu á Facebook-vegg hans, þar sem öll geta séð, líka þær fjölmörgu konur sem tilheyra félögum innan ASÍ.“

Þetta segir Sólveig Anna Jóndóttir, fyrrum formaður Eflingar, í pistli á Facebook-síðu sinni í dag.

Vísar hún þarna í pistil Tryggva Marteinssonar, sem hann skrifaði á eigin Facebook-síðu í gær eftir að hafa verið sagt upp störfum sem kjarafulltrúi Eflingar eftir 27 ára starf, og þau fjölmörgu stuðningsorð sem honum hafa verið send í formi athugasemda við pistilinn. Sólveig Anna tekur sérstaklega fyrir athugasemd frá Magnúsi M. Norðdahl, lögfræðingi Alþýðusambands Íslands. Þar segir Magnús:

„Ömurlegar fréttir kæri félagi – á löngum ferli mínum í störfum fyrir þetta stóra stéttarfélag hefur mig aldrei verið orði á þig hallað – þvert á móti.“

Sólveig Anna hefur áður sagt frá því að Tryggvi hafi hótað henni með ofbeldi þegar hún starfaði enn sem formaður Eflingar.

Tryggvi Marteinsson. Mynd/skjáskot RÚV

Sólveig Anna birtir í pistli sínum bréf, sem hún segist þegar hafa sent á Magnús Norðdahl. Afrit af bréfinu fóru til Drífu Snædal, forseta ASÍ og Höllu Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra ASÍ.

- Auglýsing -

Í bréfinu segir meðal annars að Tryggvi Marteinsson hafi hótað Sólveigu ofbeldisverkum á heimili hennar. Hún segir að hótuninni hafi fylgt nákvæm útlistun á því hvernig Tryggvi hefði áður látið hótanir sínar gegn meintum óvinum verða að veruleika. Hún segir hann einnig hafa talað um að ef hann léti verða af verknaðinum í þessu tilfelli myndi hann einungis hljóta skilorðsbundinn dóm ef hann yrði dæmdur.

 

Átti engan þátt í uppsögn Tryggva

„Eins og ég hef greint frá opinberlega þá liggur fyrir skriflegur vitnisburður frá starfsmanninum sem hann orðaði hótanir sínar við. Þessi vitnisburður kom fram bæði í samtölum við aðra starfsmenn, m.a. trúnaðarmann vinnustaðarins, og í skriflegum samskiptum sem liggja hjá mannauðsstjóra skrifstofu Eflingar.

- Auglýsing -

Ég féll frá ósk um aðgerðir vegna málsins af hálfu stjórnenda á skrifstofu Eflingar en kaus þess í stað að tilkynna um hótunina til lögreglu, eins og ég hef líka sagt frá opinberlega.

Skömmu síðar fór af stað atburðarás sem leiddi til þess að ég sagði af mér sem formaður Eflingar.“

Sólveig Anna segist ekki hafa átt neinn þátt í þeirri ákvörðun núverandi stjórnenda að víkja Tryggva úr starfi. Hún segist ekki hafa vitað af þessu fyrr en eftir á.

„Ég hef því ekki áreiðanlega vitneskju um ástæður uppsagnar, en samhengið er þó augljóst.

Í gærkvöldi birti starfsmaðurinn stöðuuppfærslu á Facebook þar sem hann segir frá uppsögninni. Hann uppnefnir af þessu tilefni stjórnendur Eflingar „kommúnista“, segist hafa „goldið þess“ að vera „karlmaður og Íslendingur“, og notar tækifærið í ummælum neðan við færsluna til að spyrja hvort Efling sé að breytast í „pólska útgáfu af stéttarfélagi“. Uppfærsla starfsmannsins er opinber og öllum Facebook-notendum sýnileg.“

 

Sakar Magnús um gerendameðvirkni

Sólveig víkur að ofangreindum ummælum Magnúsar í athugasemd við færslu Tryggva.

„Þú ert lögfræðingur Alþýðusambands Íslands og nýtur sem slíkur mikillar virðingarstöðu. Horft er til orða þinna ekki aðeins sem leiðsagnar eða álits, heldur jafnvel sem einhvers konar úrskurðar, enda er það svo að Alþýðusambandinu er treyst til að skera úr um ýmis mál sem varða aðildarfélögin og kemur þá iðulega til þinna kasta.“

Sólveig segist aldrei hafa gert kröfu um afskipti Magnúsar eða ASÍ af málinu.

„Hins vegar get ég ekki hjá því komist að lýsa undrun minni og raunar áfalli að verða vitni að því að þú sjáir þig knúinn að stíga fram með þessum hætti.

Með orðum þínum lýsir þú frammi fyrir almenningi samúð og stuðningi við geranda í ofbeldismáli, og kastar um leið opinberlega rýrð á frásögn mína sem þolanda hótunar af hálfu viðkomandi. Þetta gerir þú jafnvel þú hljótir að vera upplýstur um inntak þess sem ég hef greint frá um málið, þ.e.a.s. hversu einbeittum vilja til ofbeldisverknaðar var lýst, að vitnisburður liggi fyrir og að málið hafi verið tilkynnt verið til lögreglu.“

 

Telur Magnús gera ASÍ vanhæft til aðkomu að ofbeldismálum

Sólveig Anna fer í pistlinum yfir þá vitundarvakningu sem orðið hefur síðustu ár um hlutverk verkalýðsfélaga í málum sem snúa að kynbundnu ofbeldi og áreiti.

Varða – rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins framkvæmdi rannsókn á málum er varða kynferðislega og kynbundna áreitni og ofbeldi að beiðni miðstjórnar ASÍ og stjórnar BSRB.

„Ég tel að með framgöngu þinni hafir þú gert Alþýðusambandið vanhæft til aðkomu að málum sem snerta kynbundið ofbeldi og áreiti. Stofnun sem felur karli með þín viðhorf og hugmyndir um hvað telst ásættanleg opinber framganga í slíkum málum stöðu æðsta lögfræðivalds hefur tapað trúverðugleika sínum.

Enginn þolandi í kynbundnu ofbeldis- eða áreitnismáli getur treyst því að mál þeirra fái faglega eða hlutlausa meðferð af hálfu ASÍ meðan þú gegnir þar þeirri stöðu sem þú gerir.

Ég er ekki lengur í stöðu formanns Eflingar. Ég skrifa þér því þessar línur sem almennur félagi í einu af aðildarfélögum Alþýðusambandsins og sem þolandi ofbeldis af hálfu starfsmanns á skrifstofu sama félags.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -