Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Glúmur segir Ólaf Ragnar „mesta vind­hana sem Ísland hefir fætt og klætt“

Sólveig Anna vill ekki verða forseti ASÍ: „Af hverju ætti láglaunafólk að vilja vera þarna áfram?“

Sólveig Anna vill ekki verða forseti ASÍ: „Af hverju ætti láglaunafólk að vilja vera þarna áfram?“
Sólveig Anna Jóns­dóttir. Mynd: Róbert Reynisson

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, þvertók fyrir það að hafa áhuga á for­seta­emb­ætti Alþýðu­sam­bands Íslands í Bítinu á Bylgj­unni í morgun. Hún segir engar mál­efna­legar ástæður fyrir því að Efling verði um kyrrt innan Alþýðu­sam­bands­ins, ef sam­bandið heldur áfram á sömu braut og áður.

Drífa Snædal, fyrrum for­seti ASÍ, sagði af sér emb­ætti fyrr í mán­uð­inum. Hún gaf það einnig út að hún hygð­ist ekki gefa kost á sér í for­seta­kosn­ingum sam­tak­anna á þingi ASÍ í októ­ber.

„Tekst okkur að breyta Alþýðu­sam­band­inu í það sem það á að vera, sem sagt mjög raun­veru­legt bar­áttu­afl, eða er það ein­fald­lega svo að þetta fyr­ir­bæri er of stórt, of bjúrókradískt og of mikið úr tengslum, þannig að það mögu­lega er ekki hægt?“ spurði Sólveig Anna í Bítinu í sam­tali um Alþýðu­sam­band Íslands, yfir­vof­andi for­seta­kosn­ingar innan félags­ins og átökin innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar.

Gæti þurft að endurskoða stöðu Eflingar innan ASÍ

Hún segir að ef ekki tak­ist að breyta Alþýðu­sam­band­inu með þessum hætti gæti verið til­efni til að end­ur­skoða stöðu Eflingar innan sam­bands­ins. „Ef það er nið­ur­staðan, þrátt fyrir það að for­menn tveggja langstærstu félag­anna innan vébanda Alþýðu­sam­bands­ins berj­ist fyrir rót­tækum breyt­ingum, en það skili samt ein­hvern veg­inn engum árangri innan Alþýðu­sam­bands­ins, þá segi ég: Af hverju ætti verka- og lág­launa­fólk að vilja vera þarna áfram? Af hverju ætti verka- og lág­launa­fólk að vilja að stór summa af fjár­munum þeirra fari í að reka fyr­ir­bæri sem gagn­ast þeim á end­anum nákvæm­lega ekki neitt?“

Sólveig seg­ist ekki hafa áhuga á því að bjóða sig fram sem for­seti ASÍ. „Ég hef sagt það við félags­fólk Eflingar þegar það hefur spurt mig, að mín holl­usta sé í Eflingu og mínir starfs­kraftar nýt­ist best þar. Það stóra verk­efni sem við hófum 2018, það er mikið eftir. Ég þarf að vera þar og leiða það. Ég nýt sem betur fer trausts til þess hjá Efl­ing­ar­fólki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Eftir að hafa smíðað flugvél á unglingsárum rannsakar Sabrina Pasterski nú svarthol, þyngdarafl og eðli rúmtímans.
Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara

Fjölmargar kvartanir vegna tafa á afgreiðslu umsókna hafa borist umboðsmanni, sem vill skýringar á biðtíma.
Innlent

Drífa segir frjálst val í vændi oft vera blekk­ingu

Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára

Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi