Fimmtudagur 25. apríl, 2024
10.1 C
Reykjavik

Sólveig tjáir sig um hótanir: „Kallaði mig alltaf „konuna“ þegar hann var að úthúða mér sem fífli“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Frá því að Sólveig Anna Jónsdóttir ákvað frá að hverfa sem formaður Eflingar hefur hún gefið út sex yfirlýsingar á Facebook-síðu sinni.

Þær hafa allar að gera með brotthvarf hennar og þær ástæður sem hún segir liggja að baki. Sömuleiðis fjalla þær um átök og deilur innan skrifstofu Eflingar.

Sólveig Anna hefur enn ekki viljað tala beint við fjölmiðla. Hún hafnaði því til að mynda að mæta í Kastljós í fyrradag.

Í nýjustu yfirlýsingu sinni kemur Sólveig meðal annars inn á þær hótanir sem hún segist hafa orðið fyrir af hálfu starfsmanns Eflingar.

„Í ályktun trúnaðarmanna starfsfólks skrifstofu Eflingar frá því í sumar var því haldið fram að ég hefði stöðugt í hyggju eða væri búin að framkvæma fyrirvaralausar uppsagnir.

Fyrirvaralaus uppsögn er talið mjög alvarlegt brot á launamanni hafi atvinnurekandi ekki fyrir henni mjög góðar ástæður svo sem að launamaður hafi sýnt stórkostlegt gáleysi, hafi rækt störf sín með verulega ófullnægjandi hætti eða gerst alvarlega brotlegur í starfi,“ segir Sólveig Anna í sjöttu yfirlýsingu sinni sem hún birti á Facebook-síðu sinni í gær.

- Auglýsing -

„Ég hugsa að ég hefði getað framkvæmt fyrirvaralausa uppsögn á þeim manni sem hótaði því að koma heim til mín og gera mér mein þegar ég fékk um hótunina vitneskju 13. október síðastliðinn. Það gerði ég þó ekki. Hann var ekki einu sinni áminntur.

Hvers vegna ákvað ég að gera ekkert? Vegna þess að mér var tilkynnt að manneskjan sem hann upplýsti um langanir sínar til að fara heim til mín og gera mér illt (sem hann myndi komast upp með vegna þess að hann væri með hreina sakaskrá og yrði því ekki dæmdur til fangelsisvistar) vildi ekki, þrátt fyrir að vera svo brugðið við orð þess sem hótaði að hún leitaði með áhyggjur sínar til annars trúnaðarmanns starfsfólks skrifstofunnar og allavega eins annars starfsmanns, standa með mér vegna þess að hún vildi „vernda vinnusamband sitt samstarfsfélaga sinn til margra ára“.

Vildi frekar standa með gerandanum, manninum sem var löngu hættur að tala um mig með nafni, en kallaði mig alltaf „konuna“ þegar hann var að úthúða mér sem fífli sem ekkert kynni við samstarfsfólk okkar, en að liðsinna mér.“

- Auglýsing -

Sólveig Anna segir að þegar hún hafi heyrt af þessu hafi hún vitað að myndi hún krefjast aðgerða, til dæmis til þess að hún þyrfti ekki að borða í sama matsal og þessi maður, myndi allt verða vitlaust.

Hún segir að ekki hafi hún getað borðað inni á skrifstofu sinni, þar sem áður hafði komið fram að það væri illa séð af starfsmannahópnum.

„Ég yrði ásökuð um lygar. Um að vera búin að setja aumingja manninn á aftökulistann. Ég vissi að hann myndi sækja sér aðstoð hjá fyrrum stjórum hreyfingar vinnandi fólks, þeirra sem hafa til dæmis skemmt sér við það á síðustu árum að senda í aðdraganda þinga ASÍ og SGS erindi á fjölmenna hópa þing-gesta um hversu viðbjóðsleg glæpa-kona ég er.

Ég vissi að ástandið á skrifstofunni yrði óbærilegt fyrir mig ef ég krefðist þess að eitthvað yrði gert. Og ég gat ekki hugsað mér meira óbærilegt ástand. Það var á endanum hin einfalda og sára niðurstaða sem ég komst að eftir að hafa hugsað um málið í næstum heila viku.

Í ályktun trúnaðarmanna starfsfólks skrifstofu Eflingar frá því í sumar var því haldið fram að ég hefði stöðugt í hyggju eða væri búin að framkvæma fyrirvaralausar uppsagnir. Þrátt fyrir að það væri ósatt.

Er hægt að hugsa sér alvarlegri aðför að mannorði formanns stéttarfélags en að ásaka hana um þetta?

Þessi einbeitta og grimmilega aðför að mannorði mínu setti mig í þá stöðu að geta ekkert gert til að bregðast við vitneskju um að maður gæti hugsað sér að fara heim til „konunnar“ til að fremja glæp. Ég var föst í gildru.

Ég er þrátt fyrir allt fegin að vera laus úr henni.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -