Laugardagur 20. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Sönn íslensk sakamál: Níu manns létust í Vestmannaeyjum 1943 af völdum ban­eitraðs tréspíra

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sönn íslensk sakamál hefjast aftur á Storytel á morgun, mánudaginn 6. apríl. Fyrsta mál nýrrar seríu kallast Eitrun í Eyjum. Níu manns létust í Vestmannaeyjum 1943 af völdum ban­eitraðs tréspíra og tugir veiktust illa.

 

Sigursteinn Másson, sem unnið hefur að þáttunum, segir að Eitrun í Eyjum fjalli um það þegar þrír skipverjar á Stakksárfossi fundu sjórekna tunnu fulla af spíra við Vestmannaeyjar skömmu fyrir þjóðhátíðarhelgina 1943 og hugðu sér gott til glóðarinnar. „Það sem þeir áttuðu sig ekki á var að um var að ræða baneitraðan tréspíra en eftir helgina miklu lágu samtals níu í valnum, nokkrir fengu varanlega fötlun og tugir veiktust illa,“ segir hann.

„Í þættinum er þetta sérstæða sakamál krufið til mergjar og rætt við fólk sem upplifði atburðinn og kynnti sér þá síðar. Leyndarhyggja umlukti málið um áratuga skeið og í þættin­um er varpað ljósi á það og áhrifin á hið 3.000 manna samfélag. Sömuleiðis hvernig spírinn fór í dreifingu þrátt fyrir að sjómennirnir sem fundu hann hafi reynt að ganga úr skugga um að óhætt væri að drekka hann. Þá er fjallað er um tíðarandann og sambúðina við breska herinn sem kom sér fyrir í Eyjum tveimur mánuðum eftir að Ísland var hernumið.”

„Í nóvember heyrði ég útvarpsviðtal við Ragnar Jónsson lækni þar sem hann var að tala um eitthvert gamalt mál í Vestmannaeyjum þar sem fjölmargir dóu og aðrir veiktust mikið. Heyrði hann tala um að málið hafi legið í þagnargildi árum saman. Ég hafði aldrei heyrt um þetta mál. Þetta vakti óskipta athygli mína og ég setti mig í samband við Ragnar sem hefur öðrum fremur rannsakað þetta hörmulega mál þegar níu manns létust af völdum baneitraðs tréspíra sem dreift var á Þjóðhátíð í Eyjum. Þegar ég fór að skoða málið nánar vakti sérstaka athygli mína viðbrögð Eyjamanna auk þess sem málið sjálft er einstakt á margan hátt,” segir Sigursteinn enn fremur um þetta fyrsta mál nýrrar þáttaraðar af Sönnum íslenskum sakamálum.

Fyrsta þáttaröðin á Storytel gekk afar vel og trónir nú í fyrsta sæti yfir efni sem hefur verið hlustað á hjá efnisveitunni. Mikið hefur verið hlustað undanfarna daga hjá Storytel og hefur sala á áskriftum tvöfaldast frá því samkomubann tók gildi.

- Auglýsing -

Fjölmörg áhugaverð mál í nýju þáttaröðinni.

Sakamáin sem eru til umfjöllunar í nýju þáttaröðinni eru fjölbreytt og áhugaverð en Sigursteinn kafar til að mynda í þekkt sakamál á borð við vændisstarfsemi Svörtu perlunnar, Catalinu Ncogo, og Byrgismálið.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -