Laugardagur 20. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Spennandi fréttir fyrir skákheiminn – Einvígið sem kom Íslandi á kortið „endurvakið“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Forsætisráðherra, mennta- og barnamálaráðherra og forseti Skáksambands Íslands undirrituðu í dag samning um styrk til 50 ára afmælishátíðar „einvígis aldarinnar“ í skák á Íslandi. Meðal fyrirhugaðra viðburða er heimsmeistaramótið í Fischer-slembiskák. Margfaldur heimsmeistari í skák Magnus Carlsen og núverandi heimsmeistari í Fischer-slembiskák Wesley So hafa þegar tilkynnt þátttöku.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, við undirritun samningsins í Hörpu

Styrkurinn nemur 43 m.kr. og gildir frá 5. apríl út árið 2022. Auk heimsmeistaramótsins rennur styrkurinn til útbreiðslu á skák í skólum, alþjóðlegs kvennaskákmóts á ári kvennaskákar 2022 og til víðtækrar kynningar á einvígi aldarinnar. Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur eftirlit með framkvæmd samningsins.

Bobby Fischer og Boris Spassky háðu heimsmeistaraeinvígi í skák á Íslandi árið 1972. Viðburðurinn vakti heimsathygli þegar bestu skákmenn stórveldanna öttu kappi í Laugardalshöll á hápunkti kalda stríðsins. Einvígið kom Íslandi á kortið og er gjarnan kallað „einvígi aldarinnar.“

Bobby Fischer vann Boris Spassky í einvígi aldarinnar varð með sigrinum fyrsi Bandaríkjamaðurinn til að vinna heimsmeistaratitilinn í skák árið 1972.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -