Fimmtudagur 28. mars, 2024
-2.2 C
Reykjavik

Stækkaður menningarpottur vegna COVID-19

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Borgarráð hefur samþykkt að stækka menningarpott Reykjavíkurborgar og opnar nú fyrir umsóknir fyrir sjálfstætt starfandi listamenn til að mæta verkefna- og tekjumissi sem þeir verða fyrir vegna áhrifa COVID-19 á samfélagið, eins og segir í tilkynningu.

Styrkir verða veittir til verkefna sem örva sköpunargleði, listræn verkefni, samræður og menningarlegt framboð í borginni til lengri og skemmri tíma.

Tímabil og upphæð

Um tímabundið átaksverkefni er að ræða. Sjóðurinn sem nemur 30.000.000 kr. tekur á móti skriflegum umsóknum frá 5. maí – 17. maí 2020. Hægt er að sækja um tvær upphæðir: 500.000 kr. eða 750.000 kr.

Hverjir geta sótt um og hvað er styrkt?

Þeir sem geta sótt um eru sjálfstætt starfandi listamenn og hópar sem nú eru án verkefna eða samninga. Allar listgreinar hafa aðgang að sjóðnum en umsækjendur þurfa að vera einstaklingar eða hópar sem vinna saman að einstöku verkefni, ekki listastofnanir sem njóta opinbers stuðnings.

- Auglýsing -

Styrkir geta til dæmis fallið til:

– þróunarverkefna innan viðkomandi listgreinar

– stafrænnar útgáfu eða flutnings af verkefni svo sem tónleikum, sviðslistum osfrv.

- Auglýsing -

– annarar listrænnar starfsemi

Styrknum er ekki ætlað að koma í stað launa fyrir verkefni sem hafa fallið niður heldur að skapa vettvang fyrir ný- eða viðbótarverkefni.

Vakin er athygli á því að viðburðir eða verkefni eru ekki styrkt eftir á.

Allar nánari upplýsingar um menningarstyrkina er að finna á síðunni Menningarstyrkur vegna Covid-19.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -