Starfsmanni í skólabúðunum á Reykjum hefur verið sagt upp störfum í kjölfar alvarlegs atviks sem átti sér stað í kennslustund. Vísir fjallaði um málið í dag.
Umræddur kennari er fullorðinn karlmaður en samkvæmt heimildum Vísis var börnum kennt að vinna sér mein í kennslustundinni ásamt lýsingu á tilfinningunni sem því fylgdi. Þá hafi einnig verið fjallað um valdaójafnvægi milli kynjanna og sagði kennarinn tíma til kominn til að leiðrétta það og hvatti stúlkurnar að ráðast á drengina en um þrjátíu börn voru í kennslustundinni.
Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður skólabúðanna sem eru reknar af Ungmennafélagi Íslands (UMFÍ) sagði í samtali við Vísi að umrædd kennslustund hafi ekki verið í samræmi við kennsluáætlun búðanna. Kennarinn hafi verið starfsmaður í tæpt ár eða frá því að UMFÍ tók við rekstri búðanna síðasta haust. Sigurður lítur málið alvarlegum augum og hefur tilkynning verið send á alla grunnskóla sem senda börn í búðirnar.