Fimmtudagur 28. mars, 2024
3.8 C
Reykjavik

Steinunn, Jón Þorgeir og Kristín nýir stjórnendur hjá Þjóðleikhúsinu

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Eftir skipulagsbreytingar síðustu mánaða í Þjóðleikhúsinu hafa nú verið ráðnir þrír nýir öflugir stjórnendur í Þjóðleikhúsið. Störf þeirra koma í stað þriggja annarra starfa sem voru aflögð sem hluti af áherslu- og skipulagsbreytingum í leikhúsinu.  Kemur þetta fram í tilkynningu frá Þjóðleikhúsinu.

Nýju starfsmennirnir eru allir afar reynslumiklir á sviði leikhúsa, menningar og þjónustu. Steinunn Þórhallsdóttir tekur við sem framkvæmdastjóri leikhússins, Jón Þorgeir Kristjánsson tekur við sem forstöðumaður samskipta og markaðsmála og Kristín Ólafsdóttir tekur við nýju starfi þjónustu- og upplifunarstjóra. Þau munu koma til starfa á næstu mánuðum við að undirbúa nýtt, glæsilegt leikár Þjóðleikhússins sem hefst í lok ágúst.  Þessar breytingar nú koma í kjölfar endurnýjunar í hópi listrænna stjórnenda leikhússins og skipulagsbreytinga sem kynntar voru í mars. Markmið breytinganna eru að bæta listrænt starf og gæði, að opna leikhúsið og sækja nýja leikhúsgesti og síðast en ekki síst að bæta þjónustu og upplifun leikhúsgesta. Magnús Geir Þórðarson tók við sem leikhússtjóri þann 1. janúar.

Steinunn Þórhallsdóttir

Steinunn Þórhallsdóttir er nýr framkvæmdastjóri Þjóðleikhússins
Steinunn hefur víðtæka reynslu af stjórnun og rekstri í íslensku lista- og menningarlífi. Frá 2017 hefur hún verið framkvæmdastjóri hjá RÚV þar sem hún starfaði hátt á annan áratug sem ferla- og skipulagsstjóri, verkefnastjóri umbótaverkefna, dagskrárgerðarmaður og framleiðandi. Hún var markaðs- og kynningarstjóri Listahátíðar í Reykjavík og Íslensku óperunnar á árunum 2010-2014. Steinunn er með meistaragráðu í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst, B.A. gráðu í spænsku og bókmenntafræði frá Háskóla Íslands og lagði stund á háskólanám í mannauðsstjórnun og leiðtogafræðum í Danmörku. Hún hefur kennt námskeið um stefnumótun og hlutverk menningarfyrirtækja við Háskólann á Bifröst og unnið sem ráðgjafi um stafræna umbreytingu og jafnréttismál fyrir EBU, European Broadcasting Union.

Jón Þorgeir Kristjánsson

Jón Þorgeir Kristjánsson er nýr forstöðumaður samskipta- og markaðsmála Þjóðleikhússins
Jón Þorgeir er með áralanga reynslu af markaðsstörfum, hönnun og leikhússtörfum. Hann er með MBA próf frá Háskólanum í Reykjavík og BA gráðu í grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands. Jón Þorgeir er nú framkvæmdastjóri ÍMARK – samtaka markaðsfólks á Íslandi. Þar á undan var hann markaðsstjóri Borgarleikhússins auk þess hefur hann tekið þátt í fjölda leikhúsuppsetninga bæði hérlendis og erlendis bæði sem hönnuður og/eða markaðssérfræðingur. Einnig hefur hann hannað og framleitt auglýsingar fyrir mörg stærstu fyrirtæki landsins.

Kristín Ólafsdóttir

Kristín Ólafsdóttir tekur við nýju starfi þjónustu- og upplifunarstjóra Þjóðleikhússins
Kristín Ólafsdóttir hefur gríðarlega reynslu sem þjónustustjóri, veitingamaður og ráðsmaður á Bessastöðum.   Kristín er með meistaragráðu í framreiðslu, blómaskreytir og hefur einnig lokið námi í viðburðastjórnun frá Háskólanum á Hólum.  Kristín var yfirþjónn á Icelandair-hótelinu á Flúðum og Hótel KEA.  Kristín var ráðsmaður á Bessastöðum í níu ár, frá 2002-2011 og stýrði framhúsi og veitingasölu Borgarleikhússins á árunum 2013-2018.  Þá hefur hún ásamt eiginmanni sínum rekið veiðihúsin við Laxá í Kjós, og síðustu ár veiðihúsin við Selá og Hofsá í Vopnafirði. Þá hefur hún einnig séð um þjónustu í Eldar-lodge, sem er í sérflokki sem hágæða gistiaðstaða fyrir erlenda ferðamenn.

112 umsóknir bárust um störfin þrjú, þar af 32 í stöðu framkvæmdastjóra, 38 í starf forstöðumanns samskipta og markaðsmála og 42 í stöðu þjónustu- og upplifunarstjóra.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -