Sunnudagur 19. janúar, 2025
0.7 C
Reykjavik

Steinunn Ólína dregur byrlunarfaraldur í efa: „Ég upplifði líka skelfilega hluti“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, fjölmiðla- og leikkona, dregur í efa að í Reykjavík geisi svokallaður byrlunarfaraldur, í nýjum pistli sínum á Facebook.

Í pistlinum segist hún vilja „leggja orð í belg í þá umræðu um byrlunarfaraldur þann sem kallaður er.“

Steinunn Ólína varar við neyslu áfengis samhliða lyfjanotkun ýmiss konar. Hún segir fólk sem það geri geta upplifað ástand sem svipi mjög til einkenna sem verða þegar fólki er byrlað ólyfjan.

„Nú eru uppi hugmyndir um það hvort leyfa eigi líkamsleit við skemmti-og samkomustaði til að sporna við því að fólki sé byrluð ólyfjan á skemmtistöðum. Áður en við gefumst siðfárinu (e. moral panic) á vald og hættum að þora út á meðal fólks ellegar sæta líkamsleit eru nokkrir þættir sem mætti velta upp ss. eins og hvort hugsanlega séu í einhverjum tilfellum aðrir hlutir sem spila inn í. “

Hún segir að áfengi sé efni sem fólk ætti aldrei að neyta á fastandi maga eða þreytt og illa fyrir kallað. Sömuleiðis ætti aldrei að neyta áfengis samhliða sumum lyfjum.

„Það eru margreynd vísindi að bæði SSRI lyf þ.e algeng þunglyndislyf og bensólyf ss. eins og hið vinsæla kvíðalyf Sobril eru afskaplega óheppileg í félagi við áfengi. Mörg önnur vel þekkt lyf hafa einnig neikvæða verkun á áhrif áfengis í blóðinu en af öðrum lyfjum en fyrrnefndum hef ég ekki persónulega reynslu og get því ekki tjáð mig um það af neinu viti.“

- Auglýsing -

 

Fór oft í óminnisástand

Steinunn Ólína fer yfir persónulega reynslu sína af blöndun fyrrnefndra lyfja við áfengi:

„Meðan ég var og drakk þá tók ég bæði þunglyndislyf og kvíðalyf um þriggja ára skeið og það er sá tími sem mig langar til að segja ykkur frá. Það eru tæplega 10 ár síðan ég hætti að nota áfengi og enn lengra síðan ég notaði uppáskrifuð þunglyndis-og kvíðalyf að staðaldri en þessi reynsla er mér engu að síður í fersku minni vegna þess hversu óhugguleg hún var.

- Auglýsing -

Það gerðist oftar en ég vil muna að ég fór í blackout þrátt fyrir að drekka bara 2-3 rauðvínsglös með mat að kvöldi.

Ég vaknaði að morgni og mundi ekki hvernig ég hafði komist í rúmið og fékk að heyra að ég hefði jafnvel gengið frá í eldhúsinu, sett í þvottavél, horft á hálfa bíómynd og staðið í hrókasamræðum við bónda minn áður en ég sofnaði friðsæl á koddanum.

Ég lenti líka í því að sjá að morgni að ég hafði svarað tölvupóstum að kvöldlagi og furðulega vel stíluðum og rökréttum án þess að muna nokkuð eftir því að hafa gert það.“

 

Hljóp í sjálfstortímingarham yfir hraðbraut í Los Angeles

„Ég sýndi af mér á stundum undir áhrifum áfengis og ofangreindra lyfja kynferðislega tilburði og áhættuhegðun sem fengju nektardansara og stuntleikara til að roðna af skömm og mundi ekkert af því næsta morgun. Einhverskonar siðrof.

Ég upplifði líka skelfilega hluti, eins og að skottast út í búð að kvöldlagi, að mér fannst lítið drukkin og vakna til sjálfrar mín eins og úr öðrum heimi eftir að hafa hlaupið í sjálfstortímingarham yfir hraðbraut í Los Angeles.

Hvers vegna er ég að deila þessu með ykkur. Ekki vegna þess að ég haldi að það komi ekki fyrir að óprúttnir aðilar reyni að koma vilja sínum fram með ýmsum leiðum. Ég veit hinsvegar að ég var einfaldlega ljónheppin að hafa aldrei á umræddum tíma verið í þeim aðstæðum að aðrir gerðu mér eitthvað sem ég gat ekki spornað við eða gerði eitthvað sem ég gat ekki fyrirgefið mér vegna neyslu minnar.

Ég deili þessu ekki vegna þess að ég telji mig sérfræðing í því hvað lyfja- og áfengisneysla getur haft í för með sér en ég er þakklát fyrir að vera til frásagnar um mína persónulegu reynslu af lyfja- og áfengisneyslu án þess að hafa gert sjálfri mér eða öðrum til alvarlegra miska.“

Steinunn Ólína segist hafa borið alla ábyrgð á því sem fullorðin manneskja að neyta áfengis ofan í lyf sem hún segir að vandlega sé varað við að gera af læknum og í leiðbeiningum.

Hún segir sömuleiðis að henni finnist að í samfélagi sem borðar ógrynni af þunglyndis- og kvíðalyfjum megi brýna fyrir fólki þá áhættu sem fylgi því að nota áfengi samhliða þeim.

„Það er drullufúlt í þeim áfengiskúltúr sem hér er í hávegum hafður að geta ekki drukkið sér til skemmtunar samfara ýmsum lyfjum en því miður er það reynsla mín og margra annarra auk þess að vera vísindalega sannað að samverkun kvíða og þunglyndislyfja með áfengi getur valdið margföldun áfengisáhrifa, óeðlilegri syfju, óstjórn á hreyfingum, raddslöri, gleymsku, oflæti, óeðlilegri hvatvísi og óvanalega ósæmilegri hegðun, hreinu siðrofi, brengluðu tímaskyni, óvæntri og bráðri ofbeldishneigð og svo hreinu og kláru minnistapi,“ segir Steinunn Ólína að lokum.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -