Fimmtudagur 25. apríl, 2024
9.8 C
Reykjavik

Steinunn Ólína úthúðar Katrínu – „Stórhættulegur forsætisráðherra“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, ritstjóri Kvennablaðsins, birtir pistil á vef  í dag, þar sem hún segir Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, engan veginn valda starfi sínu. Segir hún Katrínu vera með tilætlunarsemi og yfirlæti og hún sé hreinlega stórhættulegur forsætisráðherra.

,,Skrípaleikurinn í kringum skimanir á landamærum Íslands verður sífellt skrýtnari og umræðan enn skringilegri. Um margra mánuða skeið hefur ríkisstjórn Íslands reitt sig á greiðasemi og fjárútlát erlends stórfyrirtækis til að tryggja lýðheilbrigði án þess að hafa um verklagið nokkurn samning,” segir Steinunn Ólína.

Sjá einnig: Kári svarar fyrir „frekjukastið“ – „Við björguðum því sem bjargað varð“

,,Ég minni á að þetta er sama fólkið og ætlar að reyna að tryggja opnun geðdeilda í sumar? Hvað næst? Ríkisstjórn íslands biður hjartveika að veikjast ekki fyrr en í haust sökum lokana eða þræða sig bara heima fyrir? Sama ríkisstjórn sem ætlar að tryggja sálfræðiþjónustu sem fjármálaráðherra sér enga leið enn færa til að ríkið greiði fyrir. Sama ríkisstjórn og getur ekki með neinu móti samið við framlínustarfsfólk á sjúkrastofnunum, í lögreglunni eða í umönnunarstörfum. Ég þarf ekkert að halda áfram, fyrirsagnir blaðanna og áköll framantalinna eru ljóslifandi fyrir hugsskotssjónum okkar allra.”

Steinunn Ólína segir að Kára Stefánssyni, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, beri ekki skylda til að gera neitt, og segir hún að

„Kári hefur með eftirminnilegum hætti afhjúpað allsberu keisarastjórnina sem er ekki bara frek, siðlaus, óábyrg og tilætlunarsöm heldur augljóslega getu-og ráðalaus og að auki með hugann við annað,“ og bætir við að lundarfar hans skipti ekki máli.

- Auglýsing -

,,Um geðslag Kára Stefánssonar þarf ekki að fjölyrða því það skiptir bara engu andskotans máli hvernig hann er innréttaður. Það er algjört aukaatriði hér. Hann er ekki þjóðkjörinn einstaklingur. Það er hinsvegar Katrín Jakobsdóttir sem bregst nú sem endranær og sýnir svart á hvítu að hún veldur enganveginn hlutverki sínu og er beinlínis, með tilætlunarsemi, og yfirlæti, stórhættulegur forsætisráðherra.”

Pistil Steinunnar Ólínu má lesa í heild sinni hér.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -