Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Sunnefa – Dæmd fyrir blóðskömm, beið drekkingar í átján ár og bauð kvalara sínum birginn

Sunnefa – Dæmd fyrir blóðskömm, beið drekkingar í átján ár og bauð kvalara sínum birginn
Myndin er sam­sett

Svo­kallað Sunnefu­mál er eitt lengsta saka­mál Íslands­sög­unnar. Það er kallað svo eftir Sunnefu Jóns­dóttur, en hún var árið 1739 dæmd til dauða fyrir blóð­skömm. Sunnefa var aðeins sextán ára, en hún hafði eign­ast barn með bróður sínum, Jóni Jónssyni, sem einnig var dæmdur til dauða. Jón var fjórtán ára. Þau systk­ini bjuggu á Borg­ar­firði eystri, ásamt móður sinni og stjúp­föður.

Málið hefst þegar Sunnefa verður ófrísk og elur í fram­hald­inu barn, sem er óskil­getið. Hún er færð í yfir­heyrslur hjá prest­inum í sókn­inni og þar greinir hún frá því að bróðir hennar sé faðir barns­ins.

Þau systk­ini eru þá færð í vörslu sýslu­manns, Jens Wíum í Fljóts­dal. Þar eru þau bæði dæmd til dauða fyrir blóð­skömm. Jens lét lífið stuttu síðar og sonur hans, Hans Wíum, tók við sýslu­manns­emb­ætt­inu.

Sunnefa eignast annað barn og ásakar sýslumann á Alþingi

Þegar Sunnefa og Jón hafa verið í fanga­vist í á þriðja ár, fæðir Sunnefa annað barn.

Eftir fæð­ing­una liggur Sunnefa mikið veik af bólu­sótt. Á meðan hún er fár­veik yfir­heyrir Hans Wíum hana einn síns liðs um fað­erni barns­ins. Sunnefa við­ur­kennir að Jón, bróðir hennar, sé einnig faðir ann­ars barns­ins.

Hans réttar í fram­hald­inu yfir þeim báðum og dæmir þau til dauða í annað sinn, fyrir blóð­skömm.

Þegar Sunnefa og Jón hafa setið í fanga­vist í á fjórða ár, þá nítján og sautján ára gömul, er farið með þau á Alþingi. Þar var dóm­ur­inn í fyrra mál­inu stað­festur, en allt ætlar um koll að keyra þegar Sunnefa upp­lýsir að það sé alls ekki bróðir hennar sem sé faðir seinna barns­ins, heldur sýslu­mað­ur­inn sjálfur, Hans Wíum.

Hans hafði verið sýslu­maður í Vest­manna­eyjum áður en hann tók við emb­ætti föður síns. Þar hafði hann átt tvö börn í lausa­leik.

Varðlið Hans Wíum

Sunnefa og Jón sátu í varð­haldi og biðu dauða­dóms­ins í átján ár. Loksins stefndi í að þau yrðu end­an­lega sýknuð, en áður en þeim var sleppt dó Sunnefa Jóndóttir. Jóni Jónssyni var sleppt úr haldi og hann sendur úr landi.

Málið allt hefur verið talið mik­ill áfell­is­dómur yfir Hans Wíum. Í gegnum tíð­ina hafa þó afar margir varið hann og skellt sök­inni á Sunnefu; sagt hann fórn­ar­lamb lyga­sjúkrar konu sem reyndi að leggja mann­orð hans í rúst. Eða að hún hafi dregið hann á tálar.

Aðrir hafa sagt að þarna hafi óvinir sýslu­manns­ins verið að reyna að spinna upp lygar til þess að koma höggi á hann og Sunnefa hafi ein­ungis verið peð í því valda­tafli.

Lítið hefur verið sýnt fram á hlið Sunnefu í mál­inu öllu í gegnum tíð­ina.

Lengi vel var talið að Sunnefu hafi að lokum verið drekkt, en sú virð­ist ekki hafa verið raunin.

Rödd Sunnefu

Kristín Amalía Atla­dóttir var for­sprakki sýn­ingar sem sett var upp um Sunnefu í Menn­ing­ar­mið­stöð Fljóts­dals­hér­aðs sum­arið 2019.

„Ég verð þó að við­ur­kenna að ég skil ekki hvernig menn hafa getað varið Hans Wíum. Ég reyndi það, en kemst alltaf að sömu nið­ur­stöðu. Það er varla hægt að líta fram hjá algjöru vald­leysi kvenna sem ríkti á þessum tíma og á seinni tímum,“ sagði Kristín Amalía um mál Sunnefu í Frétta­blað­inu á sínum tíma.

Kristín nefndi sem dæmi full­yrð­ingar um að Sunnefa hafi verið lauslát þar sem hún hafi eign­ast tvö börn utan hjóna­bands. Á sama tíma var Hans Wíum sagður hafa „lent í því óláni að eign­ast tvö börn fyrir hjóna­band“. Svona var lengi vel fjallað um málið.

„Þetta er alls staðar og fer að stuða mann. Það er farið með konur og valda­litla karl­menn eins og minni­hluta­hópa,“ sagði Kristín meðal ann­ars.

Í gögnum um Sunnefu­mál kemur meðal ann­ars fram að systk­inin hafi bæði verið notuð sem ókeypis vinnu­afl hjá sýslu­mann­inum eftir að þau voru dæmd.

„Þetta eru ólæsir ung­lingar gegn lög­lærðum emb­ætt­is­manni. Þau sam­þykkja öll lög­fræði­leg atriði sem Hans Wíum vill, enda vita þau ekk­ert hvað þau þýða. Það er ljóst af nið­ur­stöðum dóma að emb­ætt­is­mönnum mörgum hverjum hefur mis­boðið emb­ætt­is­færslur Wíums og rangs­leitni,“ sagði Kristín Amalía í við­tal­inu við Frétta­blaðið fyrir upp­setn­ingu sýn­ing­ar­innar. Eftir rann­sókn sína á mál­inu taldi hún sig hafa fengið nokkuð góða mynd af sýslu­mann­inum og lík­aði ekki það sem hún sá.

„Ann­að­hvort er mað­ur­inn alger­lega van­kunn­andi í lögum og rétt­ar­fars­reglum svo jaðrar við hálf­vita­skap eða hann vill þeim eitt­hvað illt“

Í seinni tíð hefur það jafn­vel verið dregið í efa að Jón hafi verið faðir fyrra barns Sunnefu. Því hefur verið haldið fram að stjúp­fað­ir­inn sé lík­legri; að hann kunni að hafa brotið á Sunnefu. Hann var tal­inn hafa gifst móður systk­in­anna til þess að kom­ast yfir bæinn. Ef hann hefði verið sóttur til saka, hefði ekki verið nokkur mögu­leiki á því að þau Sunnefa yrðu náðuð. Fæstir trúðu því hins vegar að Sunnefa og Jón yrðu dæmd til dauða, vegna þess hve ung þau voru.

Ef til vill ekki myrt, en ekki haldið á lífi

Sunnefa lést að öllum lík­indum árið 1757. Hún hafði þá mátt þola slæman aðbúnað og þó hún hafi ef til vill ekki verið myrt, má leiða líkur að því að ekk­ert hafi verið gert til að halda henni á lífi.

Fjaðrafokið sem Sunnefa olli á Alþingi þegar hún sagði frá því að Hans Wíum væri faðir seinna barns­ins, er sögu­lega mjög merki­legur atburður. Með því sýndi hún mikið hug­rekki. Hún sagði frá því að sýslu­mað­ur­inn hefði neytt hana til þess að lýsa bróður hennar föður seinna barns­ins.

Ekki ein­ungis var Sunnefa að hefja upp raust sína og tala gegn emb­ætt­is­manni, heldur bar hún sakir á mann­inn sem hún var í fanga­vist hjá – og vissi vel að hún myndi þurfa að fara aftur til að þingi loknu.

Hún hefur því vitað vel hvers konar refs­ingar kynnu að bíða hennar þegar hún færi til baka í varð­hald á Skriðuklaustur. Þrátt fyrir þetta allt sagði Sunnefa sögu sína á þingi og lét ekki þagga niður í sér.

Í átján ár beið Sunnefa Jóns­dóttir eftir drekk­ingu, sem aldrei varð. Frelsið fékk hún heldur aldrei.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Eftir að hafa smíðað flugvél á unglingsárum rannsakar Sabrina Pasterski nú svarthol, þyngdarafl og eðli rúmtímans.
Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara

Fjölmargar kvartanir vegna tafa á afgreiðslu umsókna hafa borist umboðsmanni, sem vill skýringar á biðtíma.
Innlent

Drífa segir frjálst val í vændi oft vera blekk­ingu

Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára

Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi