Laugardagur 20. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Sveinn Andri um meintan hryðjuverkamann: „Allir vita að hann gæti ekki gert flugu mein“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður segir að allir þeir sem þekkja umbjóðanda sinn, Sindra Snæ Birgisson, viti að hann gæti ekki gert flugu mein. Sindri situr í gæsluvarðhaldi vegna meintra áforma um hryðjuverk ásamt Ísidór Nathansyni. Sveinn Andri segir talið milli tvímenninganna vissulega hafa verið smekklaust en engin alvara hafi verið þar að baki.

„Það var nú ekki meiri leynd yfir þessu ráðabruggi öllu saman en að þeir voru að fimbulfamba þetta á opinni spjallrás. Töluðu saman á Signal. Þetta er kokteill af ósmekklegu gríni og fabúlasjónum. Ekkert á bak við þetta,“ segir Sveinn Andri í samtali við DV:

„Það var engin alvara á bak við þetta smekklausa spjall þeirra. Allir sem þekkja minn umbjóðanda vita að hann gæti ekki gert flugu mein. Ég hef auðvitað ekki umboð til að tala fyrir hinn. En minn umbjóðandi er algert meinleysisgrey með ofsalegan áhuga á byssum. Hann hefur vissulega gerst sekur um brot á vopnalögum með því að prenta byssur. Þetta varð hobbý hjá honum í covid. Minn maður verður dæmdur fyrir vopnalagabrot. Punktur. Þetta mál er hvorki fugl né fiskur.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -