Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Sveinn gagnrýnir samning við Arion banka: Mosfellsbær „skipulags- og byggingadeild í Arion banka“

Sveinn gagnrýnir samning við Arion banka: Mosfellsbær „skipulags- og byggingadeild í Arion banka“
Sveinn Óskar Sig­urðs­son, bæj­ar­full­trúi Mið­flokks­ins í Mos­fellsbæ,

Í dag var und­ir­rit­aður samn­ingur milli Mos­fells­bæjar og Arion banka um upp­bygg­ingu á Blika­staða­landi, sem bank­inn eign­að­ist í kjöl­far skulda­upp­gjörs eftir hrunið árið 2008. Mun Mos­fells­bær stækka um 70% þegar upp­bygg­ing­unni líkur. Sveinn Óskar Sig­urðs­son bæj­ar­full­trúi Mið­flokks­ins í Mos­fellsbæ er afar ósáttur við sam­ing­inn.

Að hans sögn er Mos­fells­bær eitt af skuld­sett­ustu sveit­ar­fé­lögum lands­ins. Segir hann við Mannlíf að skulda­hlut­fall bæj­ar­fé­lags­ins sé komið í 134% af árs­tekjum bæj­ar­ins og skuldir nemi um 1,5 milljón króna á hvern íbúa, þrátt fyrir eina mestu fjölgun íbúa á síð­ustu árum. Gagn­rýnir Sveinn seina­gang Arion banka við að koma Blika­staða­landi á markað. „Í stað þess að koma land­inu á markað hélt bank­inn þessu landi um ára­bil þar til hús­næð­is­verð á Íslandi varð hæst. Þetta er ekki kjarna­starf­semi banka og á ekki að hvera. Hvers vegna þá heim­ila stjórn­völd að fjár­mála­stofn­anir geta legið lengi á hús­eignum almenn­ings og verð­mætu bygg­ing­ar­landi svo árum skipti?“ spyr Sveinn. Enn­fremur segir hann að „lög­gjöf um fjár­mála­stofn­anir og kröfur gagn­vart þeim er mikið til sú sama og var við einka­væð­ingu bank­anna á sínum tíma, þ.e. gamla rík­is­banka­lög­gjöfin. Alþing­is­menn, borgar- og bæj­ar­full­trúar hafa ekki staðið sig í því að krefj­ast þess að fjár­mála­stofn­anir stýri ekki hús­næð­is­mark­aðnum með því að liggja á landi og þróa lög­gjöf sem krefur þá um að koma eignum úr eigna­safni sínu á markað a.m.k. innan árs eftir að það hefur ratað í bækur þeirra að hluta til eða heild.“

Undirlægjuháttur stjórnmálastéttarinnar

Sveinn Óskar segir að það megi skrifa „þennan und­ir­lægju­hátt á stjórn­mála­stétt sem að miklu leiti stendur ekki með almenn­ingi í land­inu.“ Vill hann meina að víða erlendis sé þetta ekki látið við­gang­ast og bönkum sé gert að losa sig sem allra fyrst við eignir, fyr­ir­tæki og annað sem er ekki hluti af kjarna­starf­semi þeirra. Gagn­rýnir hann að þetta sé heim­ilað því það valdi því að ungt fólk í dag hafi ekki nokkurn kost á að eign­ast þak yfir höf­uðið, „og eldri borg­arar, t.a.m. í Mos­fellsbæ, þurfa nú að borga langt yfir 300 þús­und á mán­uði í leigu fyrir örygg­is­í­búðir sínar.“

Þróun þessi segir Sveinn, er afrakstur af lög­gjöf til handa banka­stofn­unum sem hafa önnur sjón­ar­mið en sam­fé­lag eins og Mos­fellsbæ. „Með þessu fyr­ir­komu­lagi og samn­ingi af þessum toga hafa Sjálf­stæð­is­menn í Mos­fellsbæ og full­trúi Vinstri hreyf­ing­ar­innar græns fram­boðs gert Mos­fellsbæ að skipu­lags- og bygg­inga­deild í Arion banka,“ sagði Sveinn að lokum við Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Eftir að hafa smíðað flugvél á unglingsárum rannsakar Sabrina Pasterski nú svarthol, þyngdarafl og eðli rúmtímans.
Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara

Fjölmargar kvartanir vegna tafa á afgreiðslu umsókna hafa borist umboðsmanni, sem vill skýringar á biðtíma.
Innlent

Drífa segir frjálst val í vændi oft vera blekk­ingu

Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára

Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi