Besti handboltamaður allra tíma, Ólafur Stefánsson, og eiginkona hans, Kristín Soffía Þorsteinsdóttir, hafa nú selt glæsilegt einbýlishús sitt, staðsett á Álftanesi.
Ólafur og Kristín ásamt börnunum eru nú á förum til Þýskalands, þar sem Ólafur verður aðstoðarþjálfari úrvalsdeildarliðs HC Erlangen.
Óhætt er að segja að húsið áðurnefnda sé flott; það var Kjartan Rafnsson hjá KJ hönnun ehf. sem hannaði húsið sem, sem var reist árið 2017 – en Ólafur og Kristín keyptu húsið árið 2018.
En núna er húsið í eigu Hannesar Ríkharðssonar tannlæknis.