Fimmtudagur 18. apríl, 2024
1.1 C
Reykjavik

Tara um orð Aðalsteins læknis: „Þetta er gjör­­sam­­lega ó­­þolandi og ó­­­geðs­­leg full­yrðing“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Fyrr­verandi for­maður Sam­taka um líkams­virðingu og einn helsti tals­maður landsins gegn fitu­for­dómum, Tara Margrét Vil­hjálms­dóttir, er óá­nægð með orð skurðlæknisins Aðal­steins Arnar­sonar, sem starfar á Klíníkinni.

Kom fram á Vísi í gær að Aðal­steinn sagði að gríðar­leg fjölgun hefur orðið á maga­erma- og hjá­veitu­að­gerðum hér á Íslandi síðustliðin 2 ár; einnig að slíkar að­gerðir geti komið í veg fyrir al­var­lega sjúk­dóma, til dæmis krabba­mein; að úr­elt sé að segja of feitu fólki að borða minna og hollara og hreyfa sig mun meira. Aðalsteinn sagði Klíníkina stefna að því að bjóða upp á sál­fræði- eða geð­lækna­að­stoð meðfram slíkum að­gerðum, því of­fita sé gjarnan flókinn vandi:

Aðalsteinn Arnarson læknir.

„Of­þyngd hefur mjög nei­kvæð á­hrif á nokkrar tegundir krabba­meina; þannig er tíðni krabba­meina í brjósti alltaf tvö­föld hjá konum í yfir­þyngd – saman­borið við konur sem eru í kjör­þyngd. Þannig að það er mikill á­vinningur af því að vera í kjör­þyngd eða komast þangað,“ sagði Aðal­steinn.

Áðurnefnd Tara var sérlega ósátt við tvær síðustu máls­greinarnar; hún tók skjá­skot af þeim og deildi á sam­fé­lags­miðlum:

„Þetta er gjör­­sam­­lega ó­­þolandi og ó­­­geðs­­lega full­yrðing í ljósi þess að það er vel þekkt og viður­­kennd út­­skýring á hærri krabba­­meins­­tíðni feitra að það fær ekki greiningu eða þorir ekki að leita til læknis vegna fitu­­for­­dóma. Sl. vetur steig fram ung kona til að segja sögu sína af slíkri reynslu og sýndi þar með fá­­dæma hug­rekki og styrk. Höldum minningu hennar á lofti.“

Tara bætir við:

- Auglýsing -

„Hinn meinta á­vinning fær Aðal­­­steinn svo úr rann­­sóknum sem bera saman fólk sem hefur alltaf verið grannt við feitt fólk. Ekki grannt fólk sem var einu sinni feitt (hvað þá fólk sem hefur farið í að­­gerð) við feitt fólk. Út­­skýringin á því er ein­­föld: Það eru ekki til lang­­tíma rann­­sóknir af nægi­­lega háum gæðastandardi af fólki sem var einu sinni feitt. Aðal­­­lega því að það er næsta ó­­­mögu­­legt að gera feitt fólk að grönnu fólki til langs tíma. Hvort sem það fór í að­­gerð eða ekki.Þetta er því á­­lyktun sem hann getur með engu móti dregið. En gerir það samt því að það þarf að selja fleiri að­­gerðir og gera fleiri samninga við ríkið.“

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -