Fimmtudagur 18. apríl, 2024
1.1 C
Reykjavik

Telur uppsögnina hafa kostað á fjórða tug milljóna – Eyþing óskaði eftir að trúnaði um kostnaðinn

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Þetta var áfallaár í lífi mínu,“ segir Pétur Þór Jónasson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Eyþings, í viðtali við Morgunblaðið í dag. Hann fékk tæpar 15 milljónir króna í bætur vegna þess sem hann taldi ólöglega uppsögn þegar dómsátt var gerð í máli hans fyrr á árinu. Honum var sagt upp október 2018.

Eyþing óskaði eftir að trúnaður ríkti um útgjöldin er fram kemur í umfjöllun Morgunblaðsins.

Í viðtalinu ræðir Pétur aðdraganda uppsagnarinnar. Hann var kallaður á fund í október 2018. „Það var bara eitt mál kynnt fyrir mér, að það hefðu komið fram alvarlegar ásakanir á hendur mér frá samstarfskonu og það væri „Me too“- mál.,“ segir Pétur. Honum var gefinn kostur á starfslokasamningi og málið yrði þá látið niður falla og ekki rætt frekar eða að hann fengi formlega áminningu og honum sagt upp störfum. Hann segir fundinn hafa verið vondan.

Pétur Þór segir lögmann sinn svo hafa fengið bréf í hendurnar sem samstarfskonan sendi á stjórn og að þar hafi ekkert um kynferðislega áreitni komið fram.

Hann viðurkennir að ágreiningur hafi komið upp á milli hans og umræddrar samstarfskonu en að taldi það mál vera leyst. Hann segist ekki hafa neinar skýringar á því hvernig ásakanir um kynferðislega áreitni komu fram.

Dómsáttin sem gerð var 27. janúar sl. kostaði 14,8 milljónir. Pétur telur að kostnaðurinn hafi þó í heildina orðið á fjórða tug milljóna þegar annar kostnaður er reiknaður við umræddar bætur.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -