Þriðjudagur 16. apríl, 2024
0.1 C
Reykjavik

TF-LIF yfirgaf flugvöllinn í hinsta sinn: „Þessi þyrla uppfyllir allar okkar óskir og er bylting“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Á dögunum yfirgaf TF-LIF Reykjavíkurflugvöll í hinsta sinn. Þessi fornfræga þyrla hefur ekki verið í rekstri Landhelgisgæslunnar frá árinu 2020 vegna endurnýjunar á þyrluflota Gæslunnar síðustu ár, með nýrri gerð þyrlna.

Fram kemur á heimasíðu Gæslunnar að „koma Lífar til Landsins árið 1995 olli straumhvörfum í þyrlurekstri stofnunarinnar enda var þyrlan mun stærri og öflugri en þær sem fyrir voru. Ekki leið á löngu þar til kaupin voru búin að borga sig því á tæpri viku í mars árið 1997 var 39 skipbrotsmönnum bjargað um borð í þyrluna þegar Víkartindur, Þorsteinn GK og Dísarfell fórust.“

Segir ennfremur á síðunni að fjölmenni hafi fagnað þyrlunni er hún kom til landsins 23. júní árið 1995. Páll Halldórsson og Benóný Ásgrímsson flugstjórar, flugu þyrlunni til Íslands frá Frakklandi og sagði Páll að þyrlan hefði reynst vel á heimleiðinni. „Þessi þyrla uppfyllir allar okkar óskir og er bylting,“ var haft eftir honum.

Var TF-LIF kvödd með viðegandi hætti af slökkviliði flugvallarins er hún var flutt með vörubíl frá Reykjavíkurflugvelli í liðinni viku. Verður þyrlan geymd í flugskýli á Keflavíkurflugvelli þar til hún verður selt seinna á árinu.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -