Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Það tók íslenska ríkið 15 ár að uppgötva þetta

Heilsustofnunin í Hveragerði
Heilsu­stofn­unin í Hvera­gerði

Heilsu­stofnunin í Hvera­gerði fær tæpan milljarð úr ríkis­sjóði á ári. Stofnunin býður upp á endur­hæfingu fyrir einstaklinga sem þurfa á slíkri að halda í kjölfar sjúkra­húsvistar, tiltekinna sjúkdóma og slysa. Hún hefur starfað frá árinu 1955 og er í eigu Náttúru­lækninga­félags Íslands, félaga­samtaka sem stofnuð voru árið 1937.

Náttúru­lækninga­félag Íslands, eigandi Heilsu­stofnunarinnar í Hvera­gerði, tók fjármuni út úr stofnuninni með ólögmætum hætti. Alls er um að ræða tæplega 600 milljónir króna á núvirði á 15 ára tímabili. Þetta var gert með því að Náttúru­lækninga­félagið tók einhliða ákvörðun um að hækka arðgreiðslur til sín án aðkomu Sjúkra­trygginga Íslands og heilbrigðis­ráðuneytisins, en Heilsu­stofnunin fær tæpan milljarða króna úr ríkis­sjóði á ári.

Til að standa undir arðgreiðslunum hafi umfram­kostnaði verið velt á sjúklinga. Þá hafi rekstrarfé Heilsu­stofnunarinnar verið nýtt til „heilsu­tengdrar ferða­þjónustu“ sem er ekki hluti af samningum hennar við Sjúkra­tryggingar og hún látin greiða afborganir af lánum sem eru þing­lýstar í eigu Náttúru­lækninga­félags­ins ásamt því að bera allan viðhalds- og rekstrar­kostnað af fasteignunum.

Þetta er niður­staða úttektar eftirlits­deildar Sjúkra­trygginga Íslands á fjármálum Heilsu­stofnunarinnar. Úttektinni lauk í síðasta mánuði og forsvars­mönnum Náttúru­lækninga­félagsins/Heilsu­stofnunar var greint frá henni með bréfi sem sent var 13. desem­ber 2021.

Afrit af bréfinu var sent til ríkis­endur­skoðunar og heilbrigðis­ráðuneytisins.

Hægt er að lesa bréfið hér.

Lögmaður fyrirsvars­manna Náttúru­lækninga­félagsins/Heilsu­stofnunarinnar, Kristján B. Thorlacius hjá Fortis lögmanns­stofu, svaraði bréfi Sjúkra­trygginga Íslands 3. janúar síðastliðinn. Í því bréfi sem hægt að lesa í heild sinni hér, segir að ekki séu forsendur til að fallast á þau sjónarmið sem komi fram í bréfi stofnunarinnar, að þau séu ekki í samræmi við þá samninga og þær forsendur sem samstarf aðila hafi byggt á frá því að núverandi fyrir­komulag var tekið upp á árinu 1991.

Hægt er að lesa fréttina í heild sinni í Kjarnanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim