Föstudagur 19. apríl, 2024
1.8 C
Reykjavik

Thelma nýr framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Thelma Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar og hóf hún störf 1. apríl, eins og kemur fram á vef markaðsstofunnar.

Thelma er með MBA próf frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í markaðssamskiptum frá Freie Universität í Berlín. Hún starfaði áður sem rekstrarstjóri fataverkefnis Rauða kross Íslands og markaðs- og kynningarstjóri hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.

Thelma hefur verið öflug í ýmis konar félagsstarfi undanfarin ár þá einkum hjá FH þar sem hún situr nú í aðalstjórn en var einnig formaður foreldraráðs Flensborgarskólans og sat þá jafnframt í skólanefnd.

Thelma er gift Steinbirni Logasyni, grafískum hönnuði og kennara við Áslandsskóla og eiga þau tvo syni, Mána Mar sem leikur meðal annars knattspyrnu með meistaraflokki Hauka og Óttar Una leikmann 4. flokks FH í knattspyrnu.

Thelma tekur við daglegum rekstri og fjölbreyttum verkefnum sem snúa að eflingu atvinnulífs í Hafnarfirði svo sem að skapa samráðsvettvang fyrir núverandi fyrirtæki í bænum og laða að ný fyrirtæki. Markaðsstofan er jafnframt brú á milli atvinnulífs og stjórnsýslu bæjarins. Í dag eru tæplega 100 fyrirtæki í Hafnarfirði aðilar að markaðsstofunni.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -