Laugardagur 20. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Þessi Íslandsflug verða í boði í sumar

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ungverska lággjaldaflugfélagið WIZZ Air hefur hafið flug frá Íslandi til þriggja borga í Evrópu næstu daga. Um er að ræða flug milli Keflavíkur og Búdapest, Vínarborgar og Lundúna. Þar að auki hefur hollenska flugfélagið Transavia kynnt plön sín á Keflavíkurflugvelli þar sem beint flug til Amsterdam hefst 18. júní og franskt dótturfélag þess mun hefja beint flug til Orly-flugvallar í París 26. júní næstkomandi.

Mannlíf greindi fyrst frá. Tíðni flugferða Transavia verður mögulega nokkur, eða nokkrum sinnum í viku og því ljóst að bráðum fer að lifna yfir landinu á ný eftir erfiða COVID-tíma. Hins vegar á eftir að koma í ljós hvort eftirspurn verði eftir öllum flugum sem boðuð hefur verið. WIZZ Air og Transavia eru ekki þau einu með áform af þessu tagi því fyrir liggur að nokkur fyrirtæki ætla að hefja beint flug til og frá landinu á næstunni. Beint flug frá Danmörku, á vegum Andra Más Ingólfssonar, eiganda Aventura-ferðaskrifstofunnar, á að hefjast í lok mánaðarins. Þá hafa flugfélögin Atlantic Airways, Czech Airlines og SAS tilkynnt áform sín um Íslandsflug til Isavia ásamt því að Lufthansa hefur boðað bein flug til Þýskalands.

„En vonandi fer ferðaáhuginn stigvaxandi – við erum tilbúin að bregðast hratt við.“

Mannlíf greindi einnig fyrst frá flugáætlun Icelandair í Evrópu fyrir tímabilið 15. júní til 1. júlí liggur þar sem flogin verða 82 flug til 11 borga í álfunni. Flesta þeirra verða til Kaupmannahafnar en einnig verða flug til annarra höfuðborga norðurlandanna. Þá verður flogið til þýsku borganna Berlín, Munchen og Frankfurt ásamt flugum til Amsterdam, Lundúna og Parísar.

„Við erum búin að setja upp ákveðnar áherslur í sumar varðandi áfangastaði og tíðni frá og með 15. júní, þó með þeim fyrirvara að landamæri þessara landa hafi verið opnuð á þeim tíma,“ segir Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair.

Sjá nánar hér: Seinni hluti júní klár hjá Icelandair

Ásdís Ýr bendir einnig á að félagið fljúgi tvisvar sinnum í viku til Boston en önnur flug til Bandaríkjanna liggja ekki fyrir enda ennþá ferðatakmarkanir sem þangað gilda. „Danmörk og Þýskaland hafa nú þegar staðfest opnun. Þá höfum við tekið nokkra áfangastaði út úr upprunalegu sumaráætluninni okkar og aflýst þeim flugum. Þau flug sem eftir standa eru enn til skoðunar þar sem óvissan er enn mikil og við viljum geta nýtt tækifærin ef eftirspurnin býður uppá það. Við uppfærum því flugáætlunina okkar viku fram í tímann og birtum á heimasíðunni okkar. En vonandi fer ferðaáhuginn stigvaxandi – við erum tilbúin að bregðast hratt við,“ segir Ásdís Ýr.

Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair
Flugáætlun Icelandair 15. júní til 1. júlí
Kaupmannahöfn 18 flug
Osló 8 flug
Berlín 6 flug
Frankfurt 6 flug
Munchen 6 flug
Amsterdam 8 flug
París 8 flug
London 4 flug
Stokkhólmur 6 flug
Helsinki 6 flug
Zurich 6 flug

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -