Fimmtudagur 25. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Þessi norska silfurskeið fær 40 milljarða króna virði af almannaeigum Íslendinga

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Þetta er Gustav Witzøe junior.  Hann á meirihlutann í Kvarv.  Kvarv á megnið af SalMar.  SalMar á megnið af Icelandic Salmon AS.  Icelandic Salmon AS hét áður Arnarlax AS.

Arnarlax er fyrirtækið sem spilltir íslenskir stjórnmálamenn gáfu endurgjaldslaust, 40 milljarða króna virði af almannaeigum Íslendinga, í formi aðstöðu til laxeldis á Vestfjörðum.

Daginn eftir þann gjörning hækkuðu verðbréf Arnarlax AS um 40 milljarða í kauphöllinni í Oslo.

Í gær greiddi Gustav Witzøe junior sjálfum sér  17,68 milljarða í arð útúr Kvarv.

Helvítis Fokking Fokk…“

Þetta skrifar Jón Helgi Þórarinsson forritari á Facebook en í samtali við Mannlíf bendir hann á að þetta hafi flest komið fram í norskum fjölmiðlum. Gustav Witzøe yngri er fæddur árið 1993 og fæddist svo sannarlega með silfurskeið í munninum.

- Auglýsing -

Faðir hans er fimmti ríkasti Norðmaðurinn en Witzøe fjölskyldan hefur þénað milljarða á eldislaxi. Witzøe eldri flutti auð upp á 20 milljarða norskra króna til sonar síns Gustav Witzøe yngri þegar sonurinn var 13 ára.

Gustav Witzøe eldri hefur barist gegn auðlegðarskatti í Noregi en í norskum fjölmiðlum er haft eftir honum stór hluti þessa arðs renna til ríksins. Við Íslendingar getum þvi huggað okkur við það að peningurinn sem var hafður af okkur mun á endanum fara í digra sjóði norska ríkissjóðsins.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -