Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

„Ég er orð­inn leiður á að vera veikur“

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Þetta er eina leiðin í sóttvarnaraðgerðum að mati Jón Steinars

Jón Steinar Gunnlaugsson
Jón Steinar Gunn­laugs­son

Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari, er þeirrar skoð­unar að taka eigi völdin af mis­vitrum stjórn­mála­mönnum og sér­fræð­ingum þegar kemur að sótt­varn­ar­að­gerðum gegn Covid-19 hér­lendis. Honum finnst íslenska leiðin minna á ein­kenni Soví­et­ríkj­anna sál­ugu. Besta leiðin felist í því að hver og einn passi upp á sjálfan sig og treysta verði borg­urum lands­ins fyrir eigin málum.

Þetta er meðal þess sem Jón Steinar ritar í aðsendri grein í Morg­un­blaðið. Við skulum ein­fald­lega gefa dóm­ar­anum fyrr­ver­andi orðið:

„Á fyrri hluta síð­ustu aldar orti Jóhannes úr Kötlum nafn­togað kvæði „Sovét-Ísland – óska­landið – hvenær kemur þú?“ Hér var á ferð­inni ákall eða draum­sýn þeirra tíma komm­ún­ista um sælu­ríkið sem þeir vildu koma á fót. Nú vita allir að þetta var í raun ákall um stofnun alræð­is­ríkis, þar sem vald­hafar færu með allt þjóð­fé­lags­vald og drottn­uðu yfir borg­urum. Við þekkjum núna átak­an­legar frá­sagnir af lífi manna og skelfi­legum örlögum þeirra í þeim ríkjum sem komu á hinu sov­éska stjórn­skipu­lagi.

Kvæði Jóhann­esar fól í sér ákall um að koma slíku skipu­lagi á hér á landi. Að vísu verður að ætla að hvorki honum né skoð­ana­bræðrum hans á Íslandi hafi verið ljóst hvers kyns ógnir og mann­rétt­inda­brot reynd­ust óhjá­kvæmi­legir fylgi­fiskar draum­sýn­ar­innar um sov­étið. Það fól samt í sér sam­söfnun alls þjóð­fé­lags­valds í hendur manna sem höfðu náð völdum.

Mann­kyns­sagan er upp­full af dæm­unum um hvernig alræð­is­vald í höndum fárra fer með borg­ara sína. Þó að mann­kynið eigi að hafa lært af reynsl­unni eru samt margir, kannski flestir, borg­arar á þeirri skoðun að við­spyrna gegn vá, eins og t.d. veiru sem fólk smit­ast af, felist í því að koma á sov­ésku skipu­lagi. Í því felst að heim­ild borg­ara til að ráða sér sjálfir er afnumin eða skert og valdið falið hand­höfum rík­is­valds á hendur.

Sér­fræð­ingar leggja ráða­mönnum til hug­myndir um frels­is­skerð­ingar undir þeim for­merkjum að verið sé að vernda fólkið. Einkenni sov­éts­ins leyna sér ekki. Þau fel­ast meðal ann­ars í að tjá­skipti ríkis og borg­ara fara aðal­lega fram í aðra átt­ina, þ.e. frá rík­inu og til borg­ara, sem oft eiga engan kost á að fá svör við spurn­ingum um rétt­læt­ingu þess­arar vald­beit­ingar gagn­vart þeim sjálfum. Ætla verður að þessi ráð séu van­máttug.

Besta vörnin felst áreið­an­lega í að bjóða fram lyf og bólu­efni sem hver og einn borg­ari á kost á að fá, en gera síðan í meg­in­at­riðum ráð fyrir að hver og einn passi upp á sjálfan sig. Það er að minnsta kosti allt of mikið í húfi til að rétt­læt­an­legt sé að taka völdin af borg­urum um eigin hag þeirra og fá þau mis­vitrum stjórn­mála­mönnum í hendur. Við ættum því að snúa af þess­ari leið og taka aftur til við að treysta borg­urum fyrir for­ræði sinna eigin mála.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neð­an­jarð­ar­hvelf­ingu fyrir „fram­andi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Krist­ínar

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafna­skrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto