Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Pólitík

Glúmur segir Ólaf Ragnar „mesta vind­hana sem Ísland hefir fætt og klætt“

Fólk

Höllin við Sjafn­ar­götu hefur beðið eftir kaup­anda frá vor­inu 2023

Fólk

Laufey stal sen­unni á einni glæsi­leg­ustu tísku­há­tíð árs­ins

Pólitík

Reykja­vík­ur­borg þegir um upp­sagnir 50 starfs­manna

Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi

Þór óttast aukið ofbeldi Sjálfstæðismanna eftir árás á Sósíalista: „Í grunninn glæpaklíka“

Þór óttast aukið ofbeldi Sjálfstæðismanna eftir árás á Sósíalista: „Í grunninn glæpaklíka“

Þór Saari, fyrr­ver­andi þing­maður, ótt­ast að skemmda­verkin sem voru framin á hús­næði Sós­í­alista um helg­ina séu merki um aukna hörku og ofbeld­is­hneigð meðal Sjálf­stæð­is­manna. Um helg­ina var hús­næði Sós­í­alista­flokks Íslands grýtt og Gunnari Smára hótað af manni sem kvaddi „Viva Bjarni Ben“.

Sjá einnig: Gunnari Smára hótað: „Ekki bara belg­ingur eins og hót­anir eru oft­ast – Viva Bjarni Ben!“

Þór segir í pistli sem hann birtir á Facebook að það sé ekki svo lang­sótt í ljósi þess að Sjálf­stæð­is­menn eigi það til að elta nýj­ustu strauma í hægri­mennsku vest­an­hafs. Þór segir flokk­inn hafa margt á sam­visk­unni þó ofbeldi sé ekki þar á meðal.

„Það er spurn­ing hvort Skrímsla­deild Sjálf­stæð­is­flokks­ins sé að færa út kví­arnar, aftur. Frá 30. mars 1949 hafa þeir látið opin­bert ofbeldi liggja í lág­inni en notað þess í stað óhróður, und­ir­róður, fals­fréttir, Berufsver­bot og aðrar miður geð­felldar aðferðir svo sem að slúðra í Banda­ríska sendi­ráð­inu, gegn meintum and­stæð­ingum flokks­ins. Aðferðir sem hafa haft slæm áhrif á líf og lífs­af­komu fjölda fólks gegnum ára­tug­ina,“ segir Þór.

Þór segir það segja sína sögu að upp­á­halds bíó­mynd Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, sé the God­father. „Þetta er alvar­leg þróun en í takt við það sem er að ger­ast hjá syst­ur­flokki Sjálf­stæð­is­flokk­ins í Banda­ríkj­unum, Repúblikana­flokknum, sem hefur elt for­ystu­sauð sinn Donald Trump fram af brún­inni hvað lýð­ræðið varðar og bæði beitir og hótar ofbeldi. Minnumst þess að það var ráð­herrra Sjálf­stæð­is­flokks­ins og næsti for­maður hans, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son sem faðm­aði tvö böðla Trumps, það Mike Pence og Mike Pompeio, þegar þeim var boðið hingað í opin­berar heim­sóknir. Stál­hnefa tal hátt­setts fólks í flokknum hefur fært hann nær fas­isma í póli­tískri umræðu og sú stað­reynd að bíó­myndin Guð­fað­ir­inn er að upp­á­halds­mynd núver­andi for­manns flokks­ins segir kannski meira en mörg orð um hug­ar­heim hans,“ skrifar Þór.

Hann segir Sjálf­stæð­is­flokk­inn haga sér frekar eins og gengi en stjórn­mála­flokkur. „Ég tek undir með Gunnari Smára og fleirum þegar hann tjáir sig um Sjálf­stæð­is­flokk­inn og segir: „Í grunn­inn er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn glæpaklíka þar sem níð­ings­skapur gagn­vart utan­flokks­fólki er verð­laun­aður en allt sem gert er gagn­vart flokks­fólki er hefnt marg­falt.“

Ég fékk nýlega spurn­ingu frá Hannesi Hólm­steini um hvort ég væri enn þeirrar skoð­unar að rétt hefði verið að senda Geir H. Haarde fyrir Landsdóm á sínum tíma, þannig að skrá­setn­ingin gegn meintum óvinum flokks­ins er komin á akademískt stig. Hvað getur maður svo sagt gagn­vart svona, annað en að maður er þakk­látur fyrir að vera ekki sið­laus Sjálf­stæð­is­maður og hluti af þeirri við­bjóðsklíku sem sá flokkur er,“ segir Þór.

Að lokum segir efast Þór um rann­sókn máls­ins verði í for­gangi hjá lög­regl­unni og vísar til þess að Sjálf­stæð­is­menn hafa stýrt lög­regl­unni nær alla lýð­veld­is­sög­una. „Hvað um það. Þetta mál hefur verið kært til lög­reglu og það verður fróð­legt að sjá hvort hún sinnir skyldum sínum gagn­vart borg­ur­unum, eða skyldum sínum gagn­vart Sjálf­stæð­is­flokknum, við rann­sókn þessa máls.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Allir Bónus vanillu­dropar inn­kall­aðir

Innköllunin nær til allra dagsetninga og lotunúmera. Viðskiptavinum er ráðlagt að nota vöruna ekki og skila henni gegn endurgreiðslu.
Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Heimur

Lög­reglu­maður dró upp byssu vegna hádeg­is­matar sam­starfs­manns

Innlent

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara

Fjölmargar kvartanir vegna tafa á afgreiðslu umsókna hafa borist umboðsmanni, sem vill skýringar á biðtíma.
Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Innlent

Drífa segir frjálst val í vændi oft vera blekk­ingu

Innlent

Þrír hand­teknir vegna ráns í Graf­ar­vogi