Fimmtudagur 18. apríl, 2024
1.1 C
Reykjavik

Þórhildi fannst spennandi þegar hann var fyrst með annarri konu

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Þórhildur Magnúsdóttir, verkfræðingur, er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar. Þórhildur, sem hefur vakið athygli fyrir að tala opinskátt um opið samband sitt og eiginmanns síns, segir í þættinum frá upphafinu að þeirri ákvörðun að opna hjónabandið:

„Fyrst fannst mér þetta bara áhugavert, en ég var ekki komin á þann stað að biðja hann um það eða vera viss um að ég vildi þetta. En þetta vakti mikinn áhuga hjá mér og þaðan byrjaði ég að ræða þetta við manninn minn. Svo leið talsverður tími þar til að við tókum skrefið. Ein af ástæðunum fyrir því að ég fann að ég vildi gera þetta var að ég veit að ég er tvíkynhneigð, en hafði aldrei prófað það af neinu viti. Ég vissi að ég vildi prófa að vera með konum, en mig langaði samt ekkert að hætta með manninum mínum. En það tók svo auðvitað tíma að ákveða endanlega að opna sambandið og taka skrefið alla leið.”

Þórhildur man vel eftir fyrsta skiptinu sem maðurinn hennar var með annarri konu eftir að þau opnuðu sambandið:

„Ég var mjög spennt og man ekki eftir að hafa fundið fyrir mikilli afbrýðissemi beint. Þetta var eins og að horfa á spennumynd, bara vitandi að hann væri að fara að hitta hana og svo að heyra í honum á eftir. Ég hef alltaf verið mjög örugg með tenginguna mína við manninn minn, af því að við höfum alltaf verið heiðarleg og hann er bara gull af manni. Það áhugaverða við afbrýðissemi þegar maður fer að kafa ofan í hana er að oft eru það bara hlutir eins og að maður sé ekki að fá næga athygli sem kveikja hana mest. Þó að birtingarmyndin á afbrýðissemi snúist oft um annað fólk, er oft stærsta ástæðan eitthvað innra með manni sjálfum. Það endar oft þannig þegar ég er að fræða fólk um sambönd að athyglin endar hjá manni sjálfum. Heilbrigður og heiðarlegur einstaklingur er miklu líklegri til að eiga í góðu sambandi, alveg sama hvernig samband það er.“

Þórhildur segist fyrst hafa verið hikandi um að opna á þessa umræðu opinberlega:

„Þegar ég byrjaði með Instagram-síðuna ætlaði ég fyrst bara að tala um sambönd og veigraði mér við því að fara alla leið. Er ég að fara að vera manneskjan sem opnar þessa umræðu fyrir alla þjóðina?,” segir Þórhildur og heldur áfram

- Auglýsing -

„Við vorum búin að vera í opnu sambandi í nokkur ár áður en það fór í opinbera umræðu. Ég og maðurinn minn sammælumst yfirleitt um alla umfjöllun og viðtöl sem ég fer í, en pandóruboxið er opið núna og ég sný ekki til baka úr þessu. Ég er örugglega að triggera mjög marga og biðst bara afsökunar á því. En við hljótum að eiga að geta rætt þessa hluti. Margir eru með mjög sterkar skoðanir á þessu og sumir eiginlega bara brjálaðir. En ég hef verið mjög góð alveg frá byrjun í að láta það ekki hafa áhrif á mig þó að einhverjir séu brjálaðir út í mig á samfélagsmiðlum eða í kommentakerfum. Ég næ að taka meira mark á öllum jákvæðu skilaboðunum sem ég fæ. Minn ótti er meira hvort ég megi vera að bjóða upp á ráðgjöf í samböndum, menntuð í hagfræði og verkfræði. Þannig að neikvæð skilaboð um það hafa haft meiri áhrif á mig heldur en fólk sem er með sterkar skoðanir á því að ég sé í opnu sambandi.”

Þórhildur vill eiga þátt í því að við ræðum heiðarlega um hluti opið og opinberlega sem mjög margir eru að hugsa:

„Ég held að við séum árið 2022 komin á stað þar sem allir vilja vera heiðarlegir og hafa hlutina uppi á borðum. Við erum í grunninn dýr og megum ekki gleyma því. Ég vil ekki láta festa mig í einhverjum hlekkjum þegar kemur að kynlífi og þegar allt er uppi á borðum og heiðarlegt getur þetta gengið mjög vel. Lykilatriði í öllum samböndum, sama hvort þau eru opin eða ekki, er að fólk sé heiðarlegt og þori að berskjalda sig. Mjög margir kaupa sig inn í hefbundið samfélagsmunstur, án þess að vilja það og það endar bara á að springa. Fólk er að halda framhjá og skilja úti um allan bæ og það er ekki eins og hefðbundna munstrið sé að virka fullkomlega hjá öllum. Það er frábært þar sem það virkar, en hver og einn verður að fá að finna hvað hentar og hvað viðkomandi vill í sínu lífi. En aðalatriðið er að þora að sýna það hver maður raunverulega er.”

- Auglýsing -

Þáttinn með Þórhildi og alla aðra þætti Sölva Tryggvasonar má nálgast á heimasíðunni: solvitryggva.is

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -