Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Þórhildur Sunna valin umboðsmaður Pírata: „Þetta eru gríðarlega mikilvægar kosningar“

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir. Mynd: Facebook

Þórhildur Sunna Ævars­dóttir, oddviti Pírata í Suðvestur­kjördæmi, hefur fengið umboð grasrótar til þess að taka þátt í stjórnar­myndunar­viðræðum fyrir hönd flokksins eftir komandi kosningar. Umboðið gildir um allar viðræður, formlegar og óformlegar. 

„Fyrst og fremst er ég þakklát félögum mínum fyrir traustið og full tilhlökkunar fyrir komandi kosningum. Þá vil ég segja svo það sé alveg skýrt að atkvæði greitt Pírötum verður ekki notað til þess að mynda stjórn með Sjálfstæðis­flokki eða Miðflokki. Þetta eru gríðar­lega mikil­vægar kosningar þar sem áherslur Pírata á gagnsæi, öflugar spillingar­varnir og upplýsinga­rétt almennings hafa sjaldan átt jafn mikið erindi og nú, þegar hvert spillingar­málið hefur rekið annað án þess að heiðarleg tilraun hafi verið gerð til þess að rannsaka þau eða upplýsa almenning.

Píratar standa fyrir lýðræði, mann­réttindi, virkar spillingar­varnir, upplýsinga­frelsi og gagnsæi. Þessar grundvallar­áherslur flokksins eru forsenda þess að á Íslandi fái þrifist frjálst og öruggt samfélag fyrir öll þar sem atvinnulíf og nýsköpun fá að blómstra í sátt við samfélag og náttúru.

Það er ekki bara áríðandi fyrir almenning heldur einnig lofts­lagið og náttúruna að eftir þessar kosningar taki við frjáls­lynd félags­hyggju­stjórn sem hrindir í framkvæmd metnaðar­fullum aðgerðum í loftslags­málum, ræðst í umfangs­mikla uppbyggingu á félags­legum innviðum og húsnæði ásamt því að standa vörð um mann­réttindi okkar allra. Píratar munu ekki skorast undan ábyrgð. Við erum tilbúin að leggja okkar af mörkum til þess að gera slíka stjórn að veruleika,“ segir Þórhildur Sunna við tilefnið. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Nærmynd
Sport

Hver er Kolbeinn Sigþórsson?

Innlent

Ísak telur að ráðist hafi verið á sig vegna kynhneigðar

Heimur

Náttfata­veisla unglings­stúlkna endaði í harmleik

Heimur

„Þekktasta klámstjarna Ítalíu“ vill verða borgar­stjóri Rómar

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Ágreiningur um þrif, ræstiþjónustu og myndavélar í sameign fór fyrir kærunefnd

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag