Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Þórólfur bað Kára um hjálp við greiningu sýna: „Við erum vinir, félagar, fóstbræður“

Þórólfur Guðnason og Kári Stefánsson
Þórólfur Guðnason og Kári Stef­áns­son

Íslensk erfða­greining ætlar að létta undir með veiru­fræðideild Land­spítalans með því að taka við allri greiningu innan­landssýna frá og með deginum í dag. Kári Stef­ánsson segir Þórólf Guðnason hafa hringt í sig í gær með þessa bón. Hann segir það út í hött að Land­spítalinn ráði ekki við greiningu sýna.

Þetta kemur fram á RÚV. Mikið álag hefur verið á sýkla- og veiru­fræðideild Land­spítalans undan­farið og er fjöldi sýna langt fram yfir getu deildarinnar, jafnvel þótt unnið sé langt fram eftir nóttu við greiningar. Þetta segir Guðrún Svanborg Hauks­dóttir, yfir­læknir deildarinnar. Hún segir skafl af sýnum hafa myndast undan­farna daga.

Þórólfur Guðnason, sóttvarnar­læknir, óskaði eftir aðstoð Íslenskrar erfða­greiningar við greiningu sýnanna í þeirri stöðu sem nú er uppi. Kári Stef­ánsson, forstjóri Íslenskrar erfða­greiningar, svaraði kalli Þórólfs en segist í samtali við RÚV vona að fyrir­tækið sé ekki að brjóta lög með því að veita aðstoð sína. Með því skýtur hann föstum skotum á Persónu­vernd, sem úrskurðaði að fyrir­tækið hefði brotið persónuverndarlög með vísinda­rannsókn í faraldrinum.

„Og það eina sem við getum gert niður í Vatnsmýri er að vonast bara til þess að þeirri niður­stöðu að við séum ekki að brjóta lög með því að hjálpa. Við vonum að það fari að renna af Persónu­vernd og hún fari að horfa á þetta samfélag með sömu augum og aðrir,“ segir Kári.

Kári segir að í svona farsótt eigi allir að leggja sitt af mörkum. Það sé allt í lagi að Land­spítalinn leiti á náðir einka­aðila, en honum þyki hinsvegar ekki gott að Land­spítalinn sé ekki búinn að skipuleggja sig betur „til þess að geta höndlað þetta“.

„Það er einhvers konar stjórnunar­vandi í þessu kerfi og raun­verulega út í hött að það skuli ekki vera búið að gera eitthvað í þessu á tveimur árum sem stjórn­völd hafa haft til að skipuleggja þetta,“ segir Kári.

Þegar frétta­maður RÚV spyr segist Kári hafa fengið símtal frá Þórólfi Guðnasyni vegna málsins í gærkvöldi.

„Sko Þórólfur hringdi í mig í gærkvöldi, við tölum saman, nokkuð oft. Við erum vinir, félagar, fóstbræður og það var ekki möguleiki fyrir okkur í þessu ástandi að segja annað en já,“ segir Kári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra