Fimmtudagur 25. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Þriðji dagurinn í röð þar sem ekkert nýtt smit greinist

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Heildarfjöldi staðfestra COVID-19 smita er áfram 1.799 hér á landi. Ekkert nýtt smit hefur greinst á síðasta sólarhring hér á landi. Þetta er þriðji dagurinn í röð þar sem ekkert nýtt smit greinist.

Virkum smitum fer áfram fækkandi á milli daga en virk smit eru komin niður í 39 í gær. Virk smit voru 48 daginn áður, mánudag.

Í gær voru 40 sýni rannsökuð á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans. Þá voru 278 sýni rannsökuð hjá Íslenskri erfðagreiningu í gær.

Nú hafa 1.750 einstaklingar náð bata eftir að hafa smitast samkvæmt tölum á covid.is.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar klukkan 14.00 í dag. Gestur fundarins verður Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -