Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Þyngra en tárum taki að upplifa börnin mín lenda á sömu veggjum í gegnum skólagöngu hér í Garðabæ

Þyngra en tárum taki að upplifa börnin mín lenda á sömu veggjum í gegnum skólagöngu hér í Garðabæ

Frum­kvöð­ull­inn Rakel Stein­berg Sölva­dóttir ritar áhuga­verðan

pistil

um stöðu skóla­mála í Garðabæ sem ber yfir­skrift­ina:

Vel­líðan barna er ekki meðal­tal 

„Eitt mik­il­væg­asta hlut­verkið sem við tökum að okkur í líf­inu er að vera for­eldri. Okkur for­eldrum ber að ann­ast barn okkar, sýna því umhyggju og virð­ingu og gegna upp­eld­is­skyldum svo best henti hag þess og þörfum.Það er eitt að bera ábyrgð sem for­eldri en þegar kemur að skóla­göngu barn­anna okkar þá leggjum við fullt traust á sam­starf við skóla­kerfið,“ segir hún og bætir við:„Við treystum því að börnin okkar fái þá umhyggju, stuðn­ing og menntun sem þau hafa þörf fyrir og eiga rétt á. Á sama tíma og gerum við þær vænt­ingar að fjöl­skyldu okkar sé mætt af skiln­ingi. Ábyrgð sveit­ar­fé­laga Í flestum til­vikum er traust okkar byggt á stöð­ugum grunni. Því miður er það þó ekki alltaf svo. Það er þó ekki við kenn­ara að sakast því ég gef mér það að eng­inn kenn­ari fari inn í dag­inn í þeim til­gangi að mis­muna eða mæta ekki þörfum allra barn­anna sem eru í þeirra umsjá og á þeirra ábyrgð,“ og Rakel segir einnig að „ábyrgðin er sveit­ar­fé­lag­anna. Sveit­ar­fé­lögin bera ábyrgð á að sjá til þess að starfs­um­hverfið sé í stakk búið að mæta þörfum allra barna. Eins sorg­legt og það er þá virð­ist oft­ast halla á þau börn sem passa ekki inn í hinn hefð­bundna mennta­kassa – börn sem glíma við fötlun, námsörð­ug­leika og/eða eru með grein­ingar líkt og les­blindu, ADHD, ein­hverfu, asperger eða aðrar grein­ingar.“Heldur áfram:„Börn og ung­lingar, sem eiga erfitt með nám sökum sér­tækra námsörð­ug­leika og/eða fötl­unar, eiga rétt á sér­stökum stuðn­ingi í námi, sam­kvæmt grunn­skóla­lögum. En hver fylgir því eftir að þessum lögum sé fram­fylgt? Hver leggur mat á hvað telst við­un­andi stuðn­ingur? Hver styður við þá for­eldra sem þurfa að berj­ast við kerfið til að berj­ast fyrir til­veru­rétti barn­anna sinna? Hver grípur þau börn sem fá ekki þann stuðn­ing sem þau þurfa sann­ar­lega á að halda? Hver grípur þau börn sem upp­lifa sig jafn­vel ekki þess verðug? Nær öll börn er ekki nóg.“Rakel bendir á að „í Lýð­heilsu- og for­varn­ar­stefna Garða­bæjar 2021 kemur fram túlkun á könn­unum á högum og líðan barna og ung­menna í Garðabæ. Þar segir að kann­anir sýni að börnum og ung­mennum líði „almennt vel“ og að „nær öll“ börn og ung­menni séu jákvæð í námi og leik.En hvað þýðir það að börnum líði „almennt vel“ og að „nær öll börn“ taki þátt í skipu­lögðu íþrótta- og tóm­stunda­starfi? Eru það 99% allra barna í Garðabæ eða jafn­vel minna?Það er af feng­inn reynslu sem ég brenn fyrir vel­ferð barna og að stutt sé við þau börn sem passa ekki inn í það norm sem mennta­kerfið hefur sniðið þeim. Sjálf er ég týpískur ADHD ein­stak­lingur sem lenti á flestum þeim veggjum sem hægt er að lenda á í gegnum skóla­göng­una mína. Það var því þyngra en tárum taki að upp­lifa börnin mín lenda á sömu veggjum í gegnum sína skóla­göngu hér í Garða­bænum okkar.“Hún segir að því miður hafi margir for­eldrar svip­aðar sögur að segja:„Þrátt fyrir að hér séu öfl­ugir skólar með metn­að­ar­fullum kenn­urum. For­eldrum sem hafa þurft að berj­ast við kerfið gagn­ast ekk­ert að lesa um að „nær öll börn“ eða að börnum líði „almennt vel“ í Garðabæ. Ef kerfið bregst þá ætti það ekki að krefj­ast bar­áttu af hálfu for­eldra. For­eldr­arnir eru sjálfir að miklum lík­indum komnir út í horn og and­lega bug­aðir við að reyna að hjálpa barn­inu sínu.“Að mati Rakelar á kerfið að virka:„Kerfið á að grípa ein­stak­ling­ana og for­eld­rana. Ein­stak­ling­arnir eiga ekki að grípa kerfið. Fögnum fjöl­breyti­leik­anum – Gerum betur Við erum ekki öll eins. Við þurfum ekki öll að vera eins og við eigum ekki öll að vera eins. Enda hvað er eins? Fjöl­breyti­leik­inn er það sem gerir sam­fé­lögin betri og við ættum að fagna honum í stað þess að reyna að steypa alla í sama mótið. Við eigum að styðja við ein­stak­linga í mótun eins og hentar þeim hvað best. Sagan sýnir einnig að það eru jú þeir ein­stak­lingar sem passa ekki inn í fyrr­greindan kassa, sem oft á tíðum skara fram úr í sköpun og frjórri hugsun. Það einmitt það sem sam­fé­lag okkar allra nær­ist á. Við í Viðreisn viljum gera betur. Við viljum styðja við skól­ana okkar og mannauð þess. Við viljum byggja upp það umhverfi sem mætir þörfum allra barna okkar og byggir upp það kerfi sem við for­eldrar getum unnið með í þeirra þágu og þeirra fram­tíð. Punktur!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Eftir að hafa smíðað flugvél á unglingsárum rannsakar Sabrina Pasterski nú svarthol, þyngdarafl og eðli rúmtímans.
Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara

Fjölmargar kvartanir vegna tafa á afgreiðslu umsókna hafa borist umboðsmanni, sem vill skýringar á biðtíma.
Innlent

Drífa segir frjálst val í vændi oft vera blekk­ingu

Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára

Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi