Bráð veikindi komu upp um borð í skemmtiferðaskipi suður af Vík í Mýrdal í gær. Þyrla Landhelgisgæslunnar var á æfingu en var kölluð út þegar í stað.
Samkvæmt vef Gæslunnar var þyrlusveit hennar kölluð út á mesta forgangi um miðjan dag í gær vegna bráðra veikinda um borð í skemmtiferðaskipi sem statt var suður af Vík í Mýrdal.
Áhöfnin á TF-EIR var á æfingu er beiðnin barst og tók umsvifalaust stefnuna á Vestmannaeyjar þar sem fyllt var á eldsneyti. Er því lauk var flogið að skemmtiferðaskipinu sem þá var statt austur af Eyjum. Gengu hífingarnar vel að sögn Gæslunnar og var flogið með sjúklinginn á Reykjarvíkurflugvöll þar sem sjúkrabíll beið og flutti aðilann á Landspítalann.
Allar ljósmyndirnar eru frá vef Landhelgisgæslunnar.