Fimmtudagur 18. apríl, 2024
3.1 C
Reykjavik

Tilkynnt ofbeldisbrot á höfuðborgarsvæðinu í október fleiri en á sama tíma síðustu þrjú ár

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Skráð hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu á mánaðargrundvelli voru færri í október samanborið við septembermánuð. Tilkynningum um þjófnaði fjölgaði milli ára. Tilkynntum ofbeldisbrotum hefur sömuleiðis fjölgað á milli ára og sama má segja um tilkynningar um akstur undir áhrifum áfengis eða annarra fíkniefna.

Í október voru 857 hegningarlagabrot skráð á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.

Í færslu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að tilkynningum um þjófnaði hafi fjölgað á milli mánaða, en tilkynningum um innbrot hafi hinsvegar fækkað örlítið.

„Það sem af er ári hafa borist um níu prósent fleiri tilkynningar um þjófnaði en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan,“ segir í færslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Tilkynningar um ofbeldisbrot voru 130 talsins í októbermánuði og voru þær töluvert fleiri en í september.

„Ekki hafa borist jafn margar tilkynningar um ofbeldisbrot síðan í mars 2021. Álíka margar tilkynningar bárust um heimilisofbeldi í október og í september en alls voru skráðar 58 tilkynningar í október. Það sem af er ári hafa borist um 10 prósent fleiri tilkynningar samanborið við meðalfjölda sama tímabils síðustu þrjú ár á undan,“ segir í færslunni.

- Auglýsing -

Beiðnum um leit að börnum og ungmennum fækkaði á milli mánaða og voru ellefu talsins í október.

Í færslu lögreglunnar segir einnig:

„Tilkynningum um eignaspjöll fjölgaði lítillega á milli mánaða á meðan tilkynningum um nytjastuld á vélknúnum ökutækjum fækkaði töluvert.

- Auglýsing -

Skráðum fíkniefnabrotum fjölgaði á milli mánaða en ekkert stórfellt fíkniefnabrot var skráð í október. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fjölgaði á milli mánaða sem og tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur. Ekki hafa borist jafn margar tilkynningar þar sem ökumaður er grunaður um ölvun við akstur síðan í október 2019.“

Um 27 prósent færri umferðarlagabrot voru skráð á höfuðborgarsvæðinu í október en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár. Skráð umferðarlagabrot voru 792 talsins í síðastliðnum mánuði.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -