Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Glúmur segir Ólaf Ragnar „mesta vind­hana sem Ísland hefir fætt og klætt“

Ugla segir Peterson dreifa misvísandi og hættulegum upplýsingum: „Hlustið á börnin ykkar“

Ugla segir Peterson dreifa misvísandi og hættulegum upplýsingum: „Hlustið á börnin ykkar“

Ugla Stefanía Krist­jönu­dóttir Jóns­dóttir segir sál­fræð­ing­inn Jordan Peterson, sem kom fram í við­tali í Íslandi í dag á sunnu­dag, dreifa mis­vísandi og hættu­legum upp­lýs­ingum um mál­efni trans ung­menna sem geti valdið ungu fólki skaða. Ummæli Peterson um trans­börn og aðgerðir á þeim hafa vakið hörð við­brögð innan trans­sam­fé­lags­ins á Íslandi.

„Svo það sé á hreinu: Jordan Peterson hefur enga sér­þekk­ingu á trans mál­efnum né hefur unnið með trans ung­mennum eða í heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir trans ung­menni eða trans fólk almennt,“ segir Ugla Stefanía Krist­jönu­dóttir Jóns­dóttir, kynja­fræð­ingur og bar­áttu­mann­eskja fyrir mál­efnum trans­fólks, í færslu sem hún rit­aði á Facebook-síðu sinni.

„Það sem hann hefur að segja um þennan mála­flokk er þvert á aðferðir sér­fræð­inga og fólks sem vinnur með börnum í þessum mála­flokki. Hann er bók­staf­lega að dreifa mis­vísandi og hættu­legum upp­lýs­ingum sem geta valdið ungu fólki skaða ef þeim er fylgt,“ segir Ugla.

Sagði heilbrigðisstarfsfólk limlesta börn

Kanadíski sál­fræð­ing­ur­inn og fyr­ir­les­ar­inn Jordan Peterson hélt fyr­ir­lestur fyrir fullu húsi í Háskóla­bíói á laug­ar­dags­kvöld. Á laug­ar­dags­morgun tók Snorri Másson við­tal við Peterson fyrir frétta­þátt­inn Ísland í dag á Stöð 2. Í við­tal­inu átti Peterson frum­kvæði að umræðu um mál­efni trans­fólks, en hann sagði meðal ann­ars að heil­brigð­is­starfs­fólk lim­lesti börn með skurð­að­gerðum. Hann sagð­ist einnig vilja banna aðgerðir á trans­börnum undir 18 ára aldri og gera þeim laga­lega kleift að lög­sækja heil­brigð­is­starfs­fólk sem fram­kvæmi á þeim slíkar aðgerðir.

Eftir við­talið við Peterson árétt­aði Snorri að sárasjald­gæft væri að þær kyn­leið­rétt­ing­ar­að­gerðir sem hann vís­aði til væru fram­kvæmdar á ein­stak­lingum yngri en 18 ára í heim­inum. Samkvæmt heim­ildum frétta­stofu Stöðvar 2 hefðu engar slíkar aðgerðir verið fram­kvæmdar á ein­stak­lingi yngri en 18 ára á Íslandi. Stundum væru kyn­horm­óna­bælandi með­ferðir not­aðar til þess að styðja við trans ung­menni en löng reynsla væri komin á slíkar með­ferðir.

Hvetur fólk til að sýna skilning

Jordan Peterson hefur í gegnum tíð­ina verið nokkuð umdeildur fyrir ýmsar skoð­anir sínar, til að mynda á mál­efnum trans­fólks.

„Við sem sam­fé­lag myndum aldrei sætta okkur við slíka orð­ræðu ef hann væri að tala um sam­kyn­hneigð, og þess vegna ættum við ekki að sætta okkur við það varð­andi trans­fólk heldur,“ segir Ugla í sam­tali við frétta­stofu Vísis. Þar segir hún einnig að bæl­ing kyn­vit­undar hafi í langan tíma valdið trans­fólki miklum skaða.

Í færslu sinni á Facebook hvetur hún fólk til þess að sýna trans­börnum og ung­mennum skiln­ing.

„Ef ykkur er virki­lega annt um vel­ferð ung­menna þá ættuð þið að snið­ganga þessa þvælu og mæta ung­mennum frekar með umhyggju, skiln­ing og hlut­tekn­ingu. Fólk hættir ekki að vera hinsegin ef þú trúir þeim ekki. Þau hætta hins­vegar að treysta þér og bæla niður hver þau eru, sem veldur djúp­stæðri van­líðan og ama,“ segir í færslu Uglu.

„Hlustið á börnin ykkar og elskið þau skil­yrð­is­laust. Ekki láta ein­hverja for­dóma­fulla karlfauska sann­færa ykkur um eitt­hvað annað, sama hversu margar háskóla­gráður þeir hafa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Eftir að hafa smíðað flugvél á unglingsárum rannsakar Sabrina Pasterski nú svarthol, þyngdarafl og eðli rúmtímans.
Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara

Fjölmargar kvartanir vegna tafa á afgreiðslu umsókna hafa borist umboðsmanni, sem vill skýringar á biðtíma.
Innlent

Drífa segir frjálst val í vændi oft vera blekk­ingu

Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára

Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi