Fimmtudagur 18. apríl, 2024
1.5 C
Reykjavik

Ungur drengur í annarlegu ástandi réðst á tvær stúlkur – Gekk berserksgang í Nettó í Lágmúla

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Liðin nótt var ekki friðsöm ef marka má dagbók lögreglu. Lögregla greinir þar frá tveimur alvarlegum ofbeldisbrotum sem áttu sér stað í Reykjavík.  Svo voru þrír innbrotsþjófar gripnir glóðvolgir í Kópavogi og Árbæ. Mikið var um ölvunar- og vímuakstur, líkt og flestar helgar.

Stuttu fyrir miðnætti  barst lögreglu tilkynning um líkamsárás í hverfi 108, Bústaðahverfi. Lögregla segir að þar hafi „ungur drengur í annarlegu ástandi“ ráðist á tvær stúlkur og reynt að ræna þær. Aðra þeirra kýldi hann í andlitið. Stúlkunnar hlupu til foreldra sinna og elti drengurinn. Því næst réðst hann að föður  sem hann kýldi. Búið var að handtaka piltinn borgaralega þegar lögregla kom á vettvang. Lögregla segist hafa vistað drenginn á viðeigandi stofnun í samráði við foreldri og barnavernd.

Rétt fyrir klukkan átta í gærkvöldi gekk svo karlmaður berserksgang í Nettó í Lágmúla. Hann er sagður hafa ráðist á kassastarfsmann með ofbeldi og offorsi. Hann er sagður hafa stolið fé úr kassanum og svo flúið akandi af vettvangi. Lögregla kom þó auga á bíl hans skömmu síðar og veitti eftirför. Maðurinn flúði á miklum hraða og og að hluta til á móti umferð. Þetta endaði með árekstri á Reykjanesbraut, nærri Smáralind. Engin slys urðu á fólki og var maðurinn handtekinn og færður í fangageymslu.

Lögregla gómaði svo samtals þrjá menn í tveimur innbrotum í nótt. Annars vegar í iðnaðarhúsnæði í Kópavogi um hálfníuleytið og svo hjólhýsi í Árbæ um hálfeitt í nótt. Tveir menn voru handteknir á í Kópavogi og einn í Árbænum.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -