Fimmtudagur 28. mars, 2024
-0.2 C
Reykjavik

Unnar Þór missti vin sinn úr neyslu og biðlar til þingmanna: „Við getum ekki beðið, við erum að deyja“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Unnur Þór Sæmundsson, fyrrum gjaldkeri Pírata, minnist vinar síns, Alberts Ísleifssonar, í færslu sem hann skrifar á Facebook.

Albert lést 9. júlí í fyrra, 27 ára gamall, vegna ofneyslu vímefna.

Albert Ísleifsson

„Það hefði ekki verið of seint til að bjarga honum – og mörgum öðrum,“ segir Unnar Þór.

Tilefni færslunnar er fyrirhuguð atkvæðagreiðsla á Alþingi á morgun, mánudag, sem snýr að afglæpavæðingu neysluskammta vímuefna. Frumvarpið er einungis tvær málsgreinar, en í því lagt til að varsla á neysluskömmtum fíkniefna verði ekki lengur refsiverð. Einnig verður lögreglu óheimilt að gera upptæk efni neytenda, enda hefur þeirra hvorki verið aflað á ólögmætan hátt né þau í ólögmætri vörslu.

Sjá einnig: Afglæpavæðing neysluskammta – mun portúgalska leiðin virka hér?

„Portúgal var fyrsta landið í Evrópu til þess að afglæpavæða neysluskammta árið 2001. Með ótrúlegum árangri hefur samfélagslegur vandi tengdur fíkn fallið um allt að 50%. Þrátt fyrir að sérfræðingar hafi fyrirfram spáð aukningu í neyslu ákveðina efna þá hefur neysla allra efna staðið í stað,“ segir Unnar Þór, sem segist hafa varið megninu af deginum í dag að hringja í þingmenn.

- Auglýsing -

Meirihluti þingmanna telur frumvarpið ótímabært

Unnar Þór segir þingmenn meirihlutans hafa sagt ótímabært að samþykkja frumvarpið.

„Það gerir mig óendanlega sorgmæddan því ég veit frá fyrstu hendi hvernig vímuefni geta heltekið líf og lagt allt í rúst, ég þekki það líka hvernig núverandi löggjöf viðheldur ástandinu og dregur okkur til baka þegar vel gengur, gerir fíklum þannig erfiðara að skilja við neysluheiminn,“ skrifar Unnar Þór, sem sjálfur glímdi við fíkn og hefur sagt sögu sína í viðtölum, bæði á Mannlíf og í DV.

- Auglýsing -

Sjá einnig: „Mamma og amma gengu í gegnum algjört helvíti“

Unnar segir núverandi fyrirkomulag búi til glæpamenn úr veiku fólki. Stríð gegn vímuefnum sé í grunninn stríð gegn fólki, veiku fólki að hans mati. „Að vera tekinn ungur með vímuefni getur þýtt að lífið eins og fólk þekkir það sé búið. Þú færð ekki vinnu, þú færð ekki læknishjálp við hæfi, þú ert útskúfaður og eltur. Þú færð ekki séns. Hvers vegna þykir okkur í lagi að eltast við og refsa einum hóp af veiku fólki en ekki öðrum?”

Núverandi fyrirkomulag eykur á vandann

Unnar Þór segir núverandi fyrirkomulag ekki hafa fært okkur öruggara samfélag, heldur aukið á vandann. Að hans mati er tími kominn til að taka aðra stefnu og tækifærið til þess sé núna.

„Einn fíkill er miklu meira en bara fíkillinn sjálfur. Fíkillinn er barn einhvers, systkin, fjölskylda. Fíklar eru foreldrar og makar. Fíkill ætti ekki að þurfa að tengja við aðra, til að vera metin sem manneskja, hver sem er getur verið fíkill og það er enginn stikkfrí,“ segir Unnar Þór.

„Ég er fíkill í bata, ég á vini sem eru fíklar bæði í bata og ekki í bata og ég átti vini sem voru fíklar en eru farnir.“

Unnar Þór segir Ísland eiga met í dauða tengdum ofskömmtum á Norðurlöndum og afglæpavæðingu geta fært okkur nær engum dauðsföllum.

„Afglæpavæðing hefur margsannað sig í þeim löndum sem hafa haft hjarta og þor til að innleiða þessa leið. Stríð gegn vímuefnum er í grunninn stríð gegn fólki, veiku fólki. Með samtakamætti getum við breytt þessu og bjargað lífum því öll töf á málinu kemur til með að koma niður á öllu þjóðfélaginu en langverst á fíklum því við erum að deyja. Það er ekki stjórnmálafólkið sem stýrir ferðinni, sem er að deyja eða hagsmunaaðilarnir sem efast né eru það heilbrigðir einstaklingar sem týna lífinu í baráttunni við Bakkus.“

Unnar biðlar til þingmanna að leggja pólitíkina til hliðar og samþykkja frumvarpið í atkvæðagreiðslunni á morgun. „Ef það getur ekki hugsað sér að leggja pólitíkina til hliðar þá biðla ég til þeirra frá innstu hjartarótum að standa ekki í vegi fyrir lífsbjörg og sitja hjá í atkvæðagreiðslunni á Alþingi á mánudaginn.“

„Við getum ekki beðið, við erum að deyja.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -