Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Unnusta Daníels í vitnaleiðslum: „Þessi maður á eftir að drepa fleiri ef hann fær ekki lengri dóm“

Daníel Eiríksson, sem lést þann 2. apríl 2021, og Dumitru Calin sem ákærður er fyrir manndráp af gáleysi.
Daníel Eiríks­son, sem lést þann 2. apríl 2021, og Dumitru Calin sem ákærður er fyrir mann­dráp af gáleysi.

„Ég vil ekki hafa það að þessi gaur sé hér inni. Hann er morðingi.“

Þetta sagði unnusta Daníels Eiríks­sonar í Héraðs­dómi Reykjaness í dag.

Daníel lést 2. apríl árið 2021 vegna áverka sem hann hlaut fyrir utan heimili sitt að Vindakór í Kópavogi. Dumitru Calin, 25 ára gamall rúmenskur karlmaður, er ákærður fyrir að hafa með gáleysi valdið dauða hans og ekki komið manni í nauð til hjálpar. Aðal­meðferð í málinu fór fram í dag.

Lilja Björg, unnusta Daníels, var í uppnámi þegar hún gekk til sætis fyrir vitna­leiðslur. Hún tjáði dómaranum að hún væri reið. Þau Daníel höfðu nýverið trúlofað sig þegar hann lést.

Lilja var spurð hvort hún vildi að sakborningurinn viki úr réttarsal á meðan hún gæfi vitnis­burð sinn. Að endingu sagði hún að sér væri sama þótt hann sæti inni.

Fyrst var Lilja beðin um að lýsa ástandi Daníels nóttina áður en atburðurinn átti sér stað, sem og morguninn sem hann hitti Dumitru Calin á bíla­stæðinu fyrir utan heimili þeirra. Hún sagði Daníel hafa dottið í það kvöldið áður. Þau hafi verið búin að vera edrú saman í rúmlega sjö mánuði þegar hann hafði fallið.

„Þetta gekk svo vel. Við vorum ótrúlega hamingjusöm. Ástfangin,“ sagði Lilja.

Hún sagði Daníel hafa sagt sér frá Dumitru og því að hann hafi verið að senda honum hótanir í skila­boðum. „Hann var edrú þá og vildi bara losa sig frá þessum heimi.“

Var í mikilli neyslu og annarlegu ástandi

Lilja sagði að Daníel hefði farið út með vinum sínum þetta kvöld og fallið. Hún hafi áttað sig á því að hann væri búinn að neyta eitur­lyfja og fengið hann til þess að koma heim til sín. „Ég vildi frekar að hann kæmi heim til mín, svo ég gæti passað hann.“

Hún sagði þau hafa ákveðið að hún myndi keyra hann í meðferð á Vogi um morguninn. Hann hafi strax farið að reyna að útvega sér fleiri efni eftir að hann kom heim. Hún sagði fíknina hafa verið mikla. Daníel hafi ætlað sér að detta ærlega í það áður en hann færi á Vog. Hún sagði hann hafa neytt eitur­lyfja í miklu magni þar til hann lognaðist út af. Hún hafi sjálf vakið yfir honum alla nóttina og ekki ætlað sér að sofna. Eftir að Daníel sofnaði sagðist hún hinsvegar sjálf hafa farið inn í rúm og sofnað í stutta stund, enda orðin afar þreytt. Þetta var í morguns­árið, einungis nokkrum klukku­tímum áður en hún ætlaði að fara með Daníel í meðferð.

Hún sagðist hafa vaknað við það að Daníel fór á fætur í annarlegu ástandi. „Hann veit varla hvað hann er að gera.“ Hann hafi verið í símanum en hún hafi sagt honum að fara að sofa; að þau væru að fara á Vog eftir þrjár klukku­stundir. Þarna hafi klukkan verið í kringum sex um morguninn.

Miðað við ástandið á Daníel á þessum tíma­punkti sagðist Lilja ekki hafa haldið að hann færi að gera eitthvað. Að hann gæti það yfir höfuð. Hún sagðist aftur hafa sofnað, í þetta sinn í klukku­tíma eða einn og hálfan tíma. Þegar hún hafi vaknað hafi Daníel ekki verið í íbúðinni. „Ég fékk einhverja vonda tilfinningu. Ég ætlaði ekki að sofna.“

Lilja sagðist hafa farið út og séð Daníel liggja á götunni. Hún sagðist ítrekað hafa reynt að ná sambandi við hann, talað við hann og tekið í höndina á honum en hann hafi verið meðvitundar­laus. Hún hafi strax séð mikla höfuð­áverka og blóð.

Sjúkra­bíllinn kom stuttu síðar og flutti Daníel á slysa­deild.

Skilur ekki hvernig hann gæti hafa verið ógn

Það tók bersýni­lega á Lilju að rifja þennan dag upp og hún felldi tár um miðbik vitnis­burðarins.

„Ég skil ekki hvernig hann á að geta hafa verið einhver svakaleg ógn. Hann var svo rosalega dópaður og stóð varla í lappirnar.“ Lilja sagðist ekki einu sinni hafa haldið að hann gæti verið í símanum, í því ástandi sem hann var.

„Hann var ruglaður og ráfandi um, alltaf að tala um að bæta við einum skammti í viðbót. Alltaf einum skammti í viðbót.“

Verjandi sakbornings hafði engar spurningar fyrir Lilju.

Eftir síðustu spurningu sækjanda sagði Lilja að sakborningurinn hefði verið að hóta Daníel í ár áður en hann lést. „Hann fór til hans með skamm­byssu. Þess vegna fór Danni með hagla­byssu, með engin skot í, til þess að hræða hann á móti.“

Lilja sagðist vera reið. Hún sagðist sjálf hafa farið að hitta sakborninginn. „Hann man eftir því,“ sagði hún. „Ég skil ekki að menn eins og hann komi inn í landið, lifi á glæpum, lemji fólk og drepi manninn minn.“

„Þessi maður á eftir að drepa fleiri ef hann fær ekki lengri dóm.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim