Miðvikudagur 27. mars, 2024
2.8 C
Reykjavik

Úrskurðaður í gæsluvarðhald til 7. september – Flutti inn 5.000 töflur af OxyContin

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Tveir menn voru handteknir í aðgerðum lögreglu eftir að tollurinn lagði hald á 5.000 töflum af OxyContin. Annar þeirra var í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald.

Sjá einnig: Ópíóíðafaraldur sannarlega hafinn á Íslandi – Aldrei fleiri látist úr ofskammti lyfja

Karlmaður á þrítugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í gæsluvarðhald til 7. september á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á innflutningi á um 5.000 töflum af OxyContin. Tollurinn fann lyfið, sem barst hingað í póstsendingu, en um er að ræða 80 mg töflur. Í framhaldinu voru tveir menn handteknir í aðgerðum lögreglu vegna málsins og annar þeirra úrskurðaður í gæsluvarðhald, eins og áður sagði, en hinn er laus úr haldi.

Ekki getur lögreglan veitt frekari upplýsingar að svo stöddu.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -